Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Sindri Sverrisson skrifar 18. maí 2026 08:02 Neymar sýndi áhorfendum miðann með beiðni um skiptingu og þar var nafnið hans hvergi að finna. Brasilísku fótboltastjörnunni Neymar var skipt af velli í leik með Santos í Brasilíu í gær, þrátt fyrir að þjálfarinn hafi ætlað að skipta öðrum leikmanni af velli, og brást skiljanlega illur við.
Hinn 34 ára gamli Neymar heldur enn í vonina um að komast í HM-hóp Carlo Ancelotti sem tilkynntur verður í dag. Hann fékk hins vegar bara að spila 65 mínútur með Santos í gær, í 3-0 tapi á heimavelli gegn Coritiba, þegar honum var skipt af velli fyrir Robinho yngri en þar var um „óskiljanleg mistök“ að ræða af hálfu fjórða dómara leiksins, samkvæmt tilkynningu frá Santos. 🤯🇧🇷 Chaos in Brazil as Neymar was ACCIDENTALLY substituted after a mix-up from the fourth official during Santos’ game.Neymar immediately showed the camera he wasn’t supposed to come off… but the officials REFUSED to let him back onto the pitch. 🤬 pic.twitter.com/I2TpibvWZX— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) May 17, 2026 Neymar hafði fundið fyrir eymslum í kálfa og hlaut aðhlynningu sjúkraþjálfara utan vallar þegar skiptingin var gerð. Þegar hann ætlaði aftur inn á völlinn var honum bannað að gera það og brást þá ókvæða við. Neymar náði svo miðanum sem sýndi beiðni Santos um skiptingu, og þar mátti sjá að það var Gonzalo Escobar sem átti að víkja af velli. Á endanum sætti Neymar sig þó við niðurstöðuna og lét Escobar fá fyrirliðabandið, eins og sjá má á myndbandinu hér að ofan. „Fjórði dómari klúðraði skiptingunni. Þetta var staðfest í sjónvarpsútsendingunni með miðanum sem dómararnir fengu vegna skiptingarinnar. Óskiljanleg mistök sem ekki voru leiðrétt,“ sagði í yfirlýsingu Santos. Neymar hefur ekki spilað fyrir brasilíska landsliðið frá árinu 2023 enda talsvert mikið glímt við meiðsli. Hann er markahæstur í sögu liðsins með 79 mörk.
Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira