Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Valur Páll Eiríksson skrifar 17. maí 2026 22:50 Rai var jafnaðargeðið uppmálað og stökk vart bros þó titillinn væri í höfn. Michael Reaves/Getty Images Bretinn Aaron Rai fagnaði sigri á PGA-meistaramótinu í golfi á Aronimink-vellinum í Pennsylvaníu í kvöld.
Alex Smalley var efstu fyrir hring dagsins, en hann líkt og Rai, er lítt þekktur. Smalley hafði aldrei unnið atvinnumannamót fyrir lokahringinn í dag. Smalley var með tveggja högga forystu, á sex undir pari, tveimur á undan næstu mönnum. Á eftir honum komu Nick Taylor, Matthias Schmid, Aaron Rai, Jon Rahm og Ludvig Åberg. Aaron Rai eagles the 9th to move to 5-under, just one shot off the lead. 🦅👀#PGAChamp pic.twitter.com/N1QtcqDLn2— PGA Championship (@PGAChampionship) May 17, 2026 Flestra augu voru á Rahm og Åberg, sem eru þekktustu nöfnin á þeim lista, og taldir líklegastir til að sækja að Smalley. Smalley missti forystuna eftir sex holur þegar hann fékk skramba á sjöttu braut, eftir að hafa farið aðrar á pari. Hann fékk þá einnig skolla á þeirri áttundu en fugl á níundu. Spilamennska Rai var upp og niður en hann tók fljótt fram úr hinum. Hann hafði fengið tvo fugla og þrjá skolla á fyrstu átta en fékk þá örn á þeirri níundu. Hann fylgdi því eftir með fuglum á elleftu, þrettándu og sextándu braut. UNBELIEVABLE FROM AARON RAI. 🤯He drains a 70-footer at the 17th to move to 9-under and open up a three-shot lead with one hole to play.#PGAChamp pic.twitter.com/9CLcqoVXJ7— PGA Championship (@PGAChampionship) May 17, 2026 Sjálfstraustið jókst eftir því sem á leið. Hreint ótrúlegt pútt hans, sem taldi um 21 metra, fyrir fugli á sautjándu braut tryggði honum þá sigurinn, en þá var hann kominn á níu undir par. Alls var hann sex undir pari á síðustu tíu holum dagsins og sannarlega verðskuldaður sigurvegari. Hringur dagsins var hans besti á risamóti á ferlinum, upp á 65 högg, og má með sanni segja að Rai hafi toppað á réttum tíma. Rai vann mótið á níu höggum undir pari, þremur höggum Jon Rahm sem varð annar á sex undir pari vallar. Justin Thomas lék, ásamt Rai, manna best í dag, á fimm undir pari og stökk upp um 28 sæti í það þriðja á fimm undir í heildina. Alex Smalley, Svíinn Ludvig Åberg og Þjóðverjinn Matti Schmid höfnuðu í þriðja sætinu ásamt Thomas. Það voru því fjórir Evrópubúar á meðal sex efstu. Rai er fyrsti Englendingurinn til að fagna sigri á PGA-meistaramótinu frá árinu 1919, þegar Jim Barnes vann annan af sínum tveimur titlum. Hver er Aaron Rai? Aaron Rai er ekki beint nafn sem margir þekkja, enda þessi 31 árs Englendingur aðeins unnið eitt PGA-mót á öllum sínum ferli. Hann er þó í 44. sæti á heimslista kylfinga, í nánd við kylfinga á við Rickie Fowler, Jason Day, Shane Lowry og Adam Scott. Hann hefur unnið þrjú mót á Áskorendamótaröðinni og þrjú á Evrópumótaröðinni. Hann er þá að meðal fárra atvinnukylfinga heimsins sem leikur með tvo golfhanska. View this post on Instagram A post shared by Golf on CBS (@golfoncbs) Það gerir Rai, sem ólst upp í Wolverhampton á Englandi, þar sem hann spilaði mikið golf á veturna með föður sínum í kuldanum í miðlöndum Englands. Hann vandi sig snemma á tvo hanska vegna kuldans og sá stíll hefur viðhaldist fram á fertugsaldur. Rai hafði fyrir mót helgarinnar best náð 19. sæti á risamóti á ferli sínum. Því náði hann á Opna breska árið 2021, á U.S. Open 2024 og á PGA-meistaramótinu á síðasta ári. Rai hafði aðeins unnið eitt mót á PGA-mótaröðinni á sínum ferli, á Wyndham-mótinu 2024, fyrir sigur kvöldsins og tvöfaldar hann því sigra sína á mótaröðinni með titlinum.
PGA-meistaramótið Mest lesið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Körfubolti Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur R. 0-2 | Víkingar reimdu markaskóna í síðari hálfleik Fótbolti Uppgjörið: KR - Fram 2-2 | Gestirnir jöfnuðu á síðustu stundu Íslenski boltinn Þjálfari Juventus pirraður á fagnandi Alberti Fótbolti Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Enski boltinn Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Aron fagnaði sigri eftir bráðabana Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ „Við erum alltaf að gefa í“ „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Nær Spieth loksins að loka hringnum? Tveir Íslendingar á meðal fimm efstu í Danmörku Drifkrafturinn hjá McIlroy meiri eftir tímamótasigur Gunnlaugur mun aftur keppa á sterkasta áhugamannamóti í heimi DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Landsmót í golfhermi til lykta leitt á Sýn Sport Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Hulda Clara fer frábærlega af stað í atvinnumennskunni Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Sjá meira