Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Aron Guðmundsson skrifar 15. maí 2026 11:32 Ólafur Ólafsson er leiðtoginn í liði Grindavíkur. Heimamaður sem veit hversu miklu máli það myndi skipta fyrir samfélagið að vinna Íslandsmeistaratitil. vísir/Guðmundur Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur segir hitann sem kominn er í úrslitaeinvígi Grindavíkur og Tindastóls ekki hafa nein áhrif. Svona eigi þetta að vera. Bikarinn verður í Grindavík í kvöld þegar heimamenn geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.
Grindvíkingar eru 2-0 yfir í einvíginu fyrir leik kvöldsins í HS Orku höllinni í Grindavík. Bikarinn verður í húsinu og þangað mæta leikmenn Tindastóls með bakið upp við vegg, mega ekki tapa því þá verður bikarinn og Íslandsmeistaratitillinn Grindvíkinga. Oft hefur verið talað um að ákveðin pressa geti myndast á lið sem mæta til leiks með bikarinn fyrir framan sig í húsinu og tækifæri til þess að hampa honum í leikslok. Ólafur þekkir þá stöðu. „Maður þekkir það alveg. Það er skrýtið,“ segir Ólafur í samtali við Stefán Árna Pálsson fyrir leik kvöldsins. „En þá fór ég að hugsa þetta aðeins. Þetta er bara eitthvað sem maður þarf að sækja. Eitthvað sem þú þarft að ná í og vinna fyrir. Leggja þig allan fram til þess að sækja það sem þig langar í, eins og með allt annað í lífinu. Við erum klárir. Vonandi verður þetta ekki eitthvað sem hefur áhrif.“ Klippa: Óli Óla: „Það á að vera hiti“ Er pressan komin algjörlega yfir á ykkur núna? „Við setjum bara pressu á okkur sjálfir. Viljum að það sé pressa á okkur. Vitum að ef við erum á hundrað prósent hraða, hundrað prósent í öllu þá er bara rosalega erfitt að vinna okkur. Við erum mjög spenntir fyrir því að takast á við þetta verkefni.“ „Það á að vera hiti“ Um nóg hefur verið að ræða eftir síðasta leik liðanna í Síkinu og ljóst að mikill hiti er að færast í einvígið. DeAndre Kane, stjörnuleikmaður Grindavíkur, var ekki dæmdur í leikbann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ fyrir framkomu sína eftir leik Grindavíkur og Tindastóls í Síkinu á þriðjudag þar sem að hann komst í kast við stuðningsmenn Tindastóls og formann körfuknattleiksdeildar félagsins. Hann fékk 80.000 króna sekt en verður með í kvöld. Það er að skapast svolítið mikill hiti í þessari seríu. Hvernig áhrif hefur það á þig? „Ekki nein áhrif. Mér finnst gott að hafa hita. Það á að vera hiti. Það eiga að vera læti. Þetta sýnir bara að mönnum er ekki sama. Það á að vera ástríða þótt það sé kannski verið að fara yfir strikið. Þetta er bara hluti af leiknum. Hætta þessu rugli og áfram gakk. Þetta er ekkert nýtt.“ Viðtalið við Ólaf í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Leikur Grindavíkur og Tindastóls hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla Grindavík Tindastóll Körfubolti Körfuboltakvöld Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Kane bjargaði enskum Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Sjá meira