Sem tveggja barna móðir Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar 15. maí 2026 07:42 Sem tveggja barna móðir í Garðabær er öryggi eitt af því sem skiptir mig mestu máli. Ég vil að börnin mín séu örugg í skólanum, í íþróttum og tómstundum og þegar þau ferðast hér um bæinn. Það á við hvort sem er í frístundabíl, gangandi, hjólandi eða á milli hverfa til vina sinna og vinkvenna. Ég vil líka að þau séu örugg sem ungmenni, hafi staði til að koma saman og vera á og þar sem þeim líður vel og upplifi stuðning og tilheyri samfélagi. Eftir að ég eignaðist börnin mín fóru innviðir bæjarins og umhverfi barna að skipta mig miklu máli. Ég tók þátt í foreldrafélagi leikskóla sonar míns og hef síðan verið virk í foreldrafélögum bæði leikskóla og grunnskóla barna minna. Þar hef ég séð hversu mikilvægt það er að foreldrar hafi rödd og að bærinn hlusti. Það er ein stærsta ástæða þess að ég tók sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar nú á laugardag. Eitt af þeim málum sem við í foreldrafélögum skóla barna minna höfum ítrekað bent á er öryggi við skóla þeirra. Lýsing á bílastæðum hefur verið stórlega ábótavant, gönguleiðir ófullnægjandi og enn vantar öruggan göngustíg fyrir börn frá bílastæði að skólahúsnæði. Það var ekki fyrr en eftir persónulegan fund með bæjarstjóra að nokkrir nýir ljósastaurar voru settir upp. Göngustígurinn er þó enn ekki kominn. Annað sem hefur verið bent á, og nú síðustu daga sterkt á íbúasíðum Garðabæjar, er öryggi barna um borð í frístundabílum. Margir foreldrar hafa lýst yfir áhyggjum af aðstæðum barna sinna og sjálf á ég barn sem ekki vill fara í frístundabílinn vegna neikvæðrar upplifunar. Börn eru mikilvægir íbúar Garðabæjar og bæjarfélagið getur ekki firrt sig ábyrgð þegar kemur að öryggi þeirra með því að vísa einfaldlega á þjónustuaðila sem sinna verkefnum innan bæjarins. Þar þarf bærinn sjálfur að axla ábyrgð, fylgja málum eftir og tryggja að öryggi barna sé alltaf í forgangi. Öryggi er einnig stór hluti af forvörnum og þegar kemur að að öryggi og forvörnum skiptir snemmtæk íhlutun, ábyrgt eftirlit og sterkt foreldrasamstarf sköpum. Samfélagið hefur breyst hratt, veruleiki barna og ungmenna er annar en áður og áhrif samfélagsmiðla, skjánotkunar og hraðra samfélagsbreytinga eru meiri en nokkru sinni fyrr. Þess vegna þurfum við líka að þróa og uppfæra íslenska forvarnarmódelið í takt við tímann og þann veruleika sem börnin okkar búa við í dag. Við þurfum líka að nálgast ólíka hópa í fjölbreyttara samfélagi með fjölbreyttari hætti. Fyrir um tveimur árum síðan bauð ég mig fram til að vera fulltrúi í Grunnstoð þar sem foreldrar, sem fulltrúar fyrir hönd allra grunnskóla Garðabæjar, komu saman og lögðu fram tillögur um það sem betur mætti fara í öryggis-, umhverfis og almennum skólamálum barna. Þetta var mikilvægur vettvangur sem lagðist því miður af þegar foreldrar upplifðu að lítið væri hlustað og of fá mál færðust áfram. Það er miður, því bærinn þarf að hlusta betur á foreldra og gætu með vinnu sjálfboðaliða Grunnstoðar haft skýrari yfirsýn yfir stöðu barna í bænum. Það sem mér finnst þó einnig áhyggjuefni er að bærinn hafi ekki kallað eftir því að halda þessum vettvangi áfram. Ekki kallað eftir rödd foreldra. Sjálf er ég svo heppin að vera hluti af sterku foreldrasamfélagi. Foreldrar vina barnanna minna eru orðnir góðir vinir mínir og ég tel þessi tengsl vera eina sterkustu forvörn sem við eigum. En slíkt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það krefst tíma, frumkvæðis og vilja til að mæta, taka þátt og skapa tækifæri fyrir fólk til að tengjast. Við í mínum hóp höfum farið saman í útilegur, átt samverustundir og byggt upp traust sem ég trúi að muni skipta enn meira máli þegar börnin okkar eldast. Hér getur bærinn einnig haft áhrif með því að stuðla að og skapa aðstæður og hvata fyrir foreldra til að hittast, kynnast og styrkja tengsl sín og þannig foreldrasamfélagið sem heldur utan um börnin okkar. Því í öryggi felst svo margt. Það snýst ekki aðeins um líkamlegt öryggi heldur líka andlega heilsu og vellíðan — bæði barna og foreldra. Þegar börn eru örugg og þeim líður vel, þá finna foreldrar og samfélagið einnig fyrir öryggi. Þetta eru mál sem ég brenn fyrir og mun halda áfram að tala fyrir og berjast fyrir. Fái Viðreisn gott brautargengi í komandi kosningum munum við tryggja að rödd foreldra heyrist — hátt og skýrt. Setjið X við C. Höfundur er tveggja barna móðir í Garðabæ og skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Garðabær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar