Fótbolti

Glódís bikar­meistari annað árið í röð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bæjarar höfðu ástæðu til að fagna í dag.
Bæjarar höfðu ástæðu til að fagna í dag. Karl-Josef Hildenbrand/picture alliance via Getty Images

Glódís Perla Viggósdóttir tók við þýska bikarnum sem fyrirliði Bayern München eftir 4-0 sigur liðsins á Wolfsburg í bikarúrslitum í Köln í dag.

Enska landsliðskonan Georgia Stanway kom Bayern yfir af vítapunktinum undir lok fyrri hálfleiks og staðan var 1-0 í hléi. Pernille Harder tvöfaldaði forystuna þegar stundarfjórðungur var liðinn af þeim síðari.

Momoko Tanikawa skoraði þriðja markið á 77. mínútu og á þeirri 85. innsiglaði Arianna Caruso 4-0 sigur Bayern.

Glódís Perla spilaði allan leikinn í vörn Bæjara sem eru tvöfaldir meistarar. Bayern ver titilinn frá því í fyrra og er bikarmeistari í þriðja sinn í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×