Varaði Trump við átökum vegna Taívan Samúel Karl Ólason skrifar 14. maí 2026 09:30 Xi Jinping og Donald Trump. Trump fór til Kína til að ræða viðskipti ríkjanna en Xi virðiast hafa lagt mikla áherslu á málefni Taívan, sem Kínverjar segjast eiga og hafa hótað að taka með hervaldi. AP/Kenny Holston Xi Jinpin, forseti Kína, varaði Donald Trump, kollega sinn frá Bandaríkjunum, við átökum milli ríkjanna við upphaf fundar þeirra í morgun. Þá mun Xi hafa sagt Trump að ef hann heldi rangt á spöðunum varðandi Taívan, eyríkið sem Kínverjar gera tilkall til, gæti það leitt til „gífurlega hættulegs ástands“ og „átaka“.
Þetta sagði Xi eftir að Trump jós lofi yfir Xi og Kína í upphafi síns ávarps á fundinum og sagði það meðal annars mikinn heiður að vera vinur Xi, eins og fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar. Forsetarnir funduðu í um tvær klukkustundir í morgun. Þar ræddu þeir meðal annars viðskipti ríkjanna en samkvæmt talskonu utanríkisráðuneytis Kína sagði Xi snemma á fundinum að stærsta málefnið í samskiptum ríkjanna væri Taívan. „Ef rétt verður haldið á spöðunum munu samskipti okkar heilt yfir vera stöðug,“ sagði Xi um Taívan. „Ef ekki mun ríkin eiga í deilum og jafnvel átökum og setja sambandið í heild í mikla hættu.“ Þá notaði Xi hugtakið um gildru Þúkýdídes og sagði að ríkin þyrftu að komast hjá þeirri gildru. Þetta hugtak fjallar um þá hugmynd að þegar rísandi veldi ógnar stöðu annars stórveldis sé stríð líklegra en ekki. Sjá einnig: „Við erum tvö stórveldi“ Skömmu áður hafði Trump lofað Xi í hástert fyrir framan myndavélarnar. „Þú ert frábær leiðtogi. Stundum er fólki illa við að ég segi það en ég segi það samt, af því að það er satt,“ sagði Trump. „Það er mikill heiður að vera með þér. Það er heiður að vera vinur þinn.“ Óánægðir með vopnasölu Kínverjar hafa lýst yfir mikilli óánægju með að Bandaríkjamenn ætli að selja Taívönum mikið magn vopna og hergagna. Ríkisstjórn Trumps samþykkti söluna, sem er sú umfangsmesta í sögu ríkjanna, í desember en ekki hefur orðið af henni enn. Eins og frægt er gera Kínverjar tilkall til Taívan og hefur Xi heitið því að sameina Kína og Taívan og gera það með valdi ef svo þarf. Hann er sagður hafa gert það að markmiði sínu að ná völdum á Taívan og hefur hann sagt að það markmið megi ekki enda á höndum komandi kynslóða. Undanfarin ár hafa Kínverjar beitt Taívan sífellt meiri þrýstingi með því markmiði að grafa undan vörnum ríkisins. Herafli Kína hefur sömuleiðis gengist mikla nútímavæðingu og uppbyggingu en Xi er sagður hafa skipað forsvarsmönnum hersins að vera tilbúnir fyrir mögulega innrás í Taívan árið 2027. Það ár mun marka aldarafmæli kínverska hersins. Taívanar segjast sjálfstæðir og segjast ætla að verja frelsi sitt og lýðræði. Sjálfstæðissinnum hefur vaxið ásmegin í Taívan á undanförnum árum en Taívanar hafa aldrei lýst yfir formlegu sjálfstæði. Bandaríkin slitu formlegum tengslum við Taívan árið 1979, að kröfu Kínverja, en hafa þrátt fyrir það haldið umfangsmiklum óformlegum tengslum við ríkið og útvega Taívan meðal annars vopn. Bandaríkjamenn hafa um árabil haldið því loðnu hvort þeir myndu beita valdi til að verja Taívan. Sjá einnig: Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Yfirvöld í Taívan sendu í morgun út yfirlýsingu um að íbúar væru þakklátir fyrir langtímastuðning Bandaríkjanna.
Kína Bandaríkin Donald Trump Taívan Hernaður Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Sjá meira