Flugvöllur er ekki bara upp á punt Kristján Már Unnarsson skrifar 14. maí 2026 08:48 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer með málefni flugvalla í ríkisstjórninni. Sigurjón Ólason Innviðaráðherra hyggst láta greina hvort gullhúðun Evróputilskipana hafi átt sér stað þegar íslenskum flugvöllum var gert að fá bæði starfsleyfi og rekstrarleyfi. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur er sökuð um að fara langt út fyrir valdheimildir sínar með því að reyna að þrengja að Reykjavíkurflugvelli.
Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt frá fundi Flugmálafélags Íslands um flugvöllinn með frambjóðendum í síðustu viku. Þar fullyrti Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál, að gullhúðun Evróputilskipana hefði átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var, til viðbótar við rekstrarleyfi Samgöngustofu til Isavia, gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga. Slíkt fyrirkomulag gilti um enga aðra evrópska flugvelli. „Fyrir flugvelli hérna á Íslandi er þá skýrt dæmi um séríslenska gullhúðun á EES-reglum,“ sagði Karl, sem áður var yfirlögfræðingur Isavia. Karl Alvarsson, fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, er formaður fagráðs um flugmál, sem tók við hlutverki flugráðs.Bjarni Einarsson En hyggst innviðaráðherra bregðast við þessu á einhvern hátt? „Já, við ætlum að greina þetta betur, alveg klárlega,“ svarar Eyjólfur Ármannsson. „Þetta er mjög áhugavert atriði sem er hér komið fram með. Virkilega áhugavert að við séum með gullhúðun, meðal annars með starfsleyfi fyrir flugvöllinn og svo líka rekstrarleyfi,“ segir ráðherrann. Hér er í raun nýjasta dæmið um átökin um flugvöllinn en heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, undir formennsku Hjálmars Sveinssonar, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, kynnti í vetur drög að nýju starfsleyfi, sem ráðamenn flugvallarins hafa lýst sem mjög íþyngjandi. „Okkur sem að þessum málum koma virðist ljóst að eftirlitið hafi farið langt út fyrir þær valdheimildir, sem þeir hafa, í drögum að starfsleyfinu,“ sagði Karl og bætti við: „Hvorki borgarráð, borgarstjórn né Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer með þær valdheimildir sem að gera þeim kleift að stöðva eða takmarka lendingar loftfara á Reykjavíkurflugvelli. Þær valdheimildir liggja hjá öðrum stofnunum ríkisins.“ Samkvæmt drögum að starfsleyfinu er ætlunin að takmarka mjög þyrlu- og þotuflug, en einnig kennsluflug. Tilgangurinn er sagður sá að draga úr ónæði í ljósi mikillar fjölgunar kvartana yfir hávaða. Drög að nýju starfsleyfi Reykjavíkurflugvallar gera meðal annars ráð fyrir að takmarka mjög einkaþotur á vellinum. Hér eru þotur forsætisráðherra Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar nýlentar haustið 2024. Bílalestir bíða þess að aka með ráðherrana og fylgdarlið til sameiginlegs ráðherrafundar.KMU „Þeir virðast byggja fyrst og fremst á fjölda kvartana en ekki á hljóðmælingum, fjölda kvartana út af hávaða, en ekki á hljóðmælingum,“ segir Eyjólfur. „En við erum bara að skoða þetta mál nánar. En það breytir því ekki að flugvöllurinn er ekki að fara.“ Ráðherrann segir grundvallaratriði að hann nýtist. „Við ætlum ekki að hafa flugvöll þarna bara upp á punt. Það þarf að fljúga og lenda á honum. Þetta er bara eins og með fimm hæða hús. Það verður að nota allar hæðirnar af húsinu, ekki rétt? En ekki bara einhvern pínulítinn hluta,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Hér má sjá þrjár einkaþotur norrænna forsætisráðherra lenda í röð á vellinum fyrir tveimur árum:
Reykjavíkurflugvöllur Heilbrigðiseftirlit Borgarstjórn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flug Umhverfismál EES-samningurinn Evrópusambandið Tengdar fréttir „Ég elska þennan flugvöll“ Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins. 7. maí 2026 22:20 Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar. 12. maí 2026 12:32 Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20 Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07 Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent Fleiri fréttir „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Sjá meira
„Ég elska þennan flugvöll“ Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins. 7. maí 2026 22:20
Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar. 12. maí 2026 12:32
Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20
Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07