Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar 13. maí 2026 13:33 Kosið verður til sveitarstjórna næsta laugardag. Ýmsir stjórnmálaflokkar boða að þeir muni fjölga leikskólaplássum og stytta biðlista í leikskóla enda fá börn í mörgum sveitarfélögum ekki leikskólapláss á þeim tíma sem reglur hvers sveitarfélags kveða á um. Biðlistar eftir leikskólaplássum hafa raunveruleg áhrif á líf fjölskyldna, t.d. á atvinnuþátttöku foreldra, fjárhag heimila, skipulag fjölskyldulífs og velferð barna. Iðulega, þegar foreldri kemst að því að löng bið er eftir leikskólaplássi fyrir barn sitt, verður það að fréttamáli og réttilega svo. Í Reykjavík geta foreldrar barns í bið, fylgst með stöðu leikskólaumsóknar í Völu appinu og séð hvar barnið er statt á biðlista eftir einstökum leikskólum. Borgin hefur einnig sett upp Leikskólareikni sem notar lifandi gögn til að gefa foreldrum betri mynd af stöðu barns á biðlista. Svona á stjórnsýsla einmitt að starfa þegar fólk bíður eftir mikilvægri þjónustu. Fólk á ekki að þurfa að bíða í langan tíma án þess að vita hvar það stendur, hvers vegna það bíður eða hvenær röðin kemur að því. Ekkert yfirlit yfir biðtíma fatlaðs fólks Af hverju gildir þetta ekki með sama hætti þegar fatlað fólk bíður eftir lögbundinni þjónustu? Við búum í samfélagi þar sem hægt er að fylgjast með stöðu pítsupöntunar í rauntíma. En fatlað fólk sem bíður eftir aðstoð til að komast fram úr rúmi, út úr húsi, í nám, vinnu, félagslíf eða fjölskyldulíf fær ekki skýra mynd af því hvar mál þess stendur, hvað tefur, hver ber ábyrgð eða hvenær lausnin kemur. Það er grafalvarlegt að fatlað fólk sé sett á biðlista eftir þjónustu sem það þarf til að lifa lífi sínu. Þá er ekki aðeins verið að fresta þjónustu, heldur fresta lífi fólks. Biðlisti í grunnskóla? Þó leikskóladvöl sé ekki lögfest líkt og grunnskólamenntun, þá tekur samfélagið leikskólabiðlista alvarlega. En göngum skrefinu lengra. Hvað ef sveitarfélag tilkynnti foreldrum sex ára barna að því miður gætu ekki öll sex ára gömul börn hafið grunnskólagöngu næsta haust? Að sum börn fengju skólavist strax en önnur eftir nokkra mánuði og enn önnur jafnvel bara á næsta ári ef fjármagn fengist og úthlutun næsta árs leyfði. Við myndum aldrei sætta okkur við að skólaskylda barna væri háð biðlista, árlegri úthlutun eða því hvort sveitarfélagið teldi sig hafa efni á að virða rétt þeirra til menntunar. Við myndum krefjast skýringa, aðgerða, fjármögnunar og tímasettra áætlana. Lífi fólks slegið á frest Það er óeðlilegt að fatlaðir einstaklingar fái þau svör að þó þau þurfi nauðsynlega aðstoð, séu þau því miður föst á biðlista og engar upplýsingar liggi fyrir um stöðu þess á þeim lista. Líf fatlaðs fólks er sett í bið og þar með eru daglegar ákvarðanir þess, samfélagsþátttaka, nám, vinna, fjölskyldulíf og sjálfsákvörðun einnig sett í bið. NPA er ekki góðgerðarstarfsemi eða lúxusúrræði, heldur forsenda þess að fólk geti ráðið eigin lífi. NPA er jafnframt ein markvissasta leiðin til að tryggja sjálfstætt líf fatlaðs fólks, þannig að það stjórni sjálft eigin aðstoð: hvað er gert, hvenær, hvar, hvernig og hver veitir aðstoðina. Bið eftir sjálfstæðu lífi Markmið laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir eru skýr. Þjónustan á að styðja fatlað fólk til fullra mannréttinda til jafns við aðra og skapa skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Þessi markmið fela í sér skyldur og mega ekki eingöngu vera fögur orð sem geymd eru í stefnumótunarskjali en gleymd í framkvæmd. Biðlistar eru ekki náttúrulögmál heldur verða til vegna mannlegra og pólitískra ákvarðana og manngerðra kerfa. Biðlistar sýna forgangsröðun, þ.e. hvaða réttindi eru fjármögnuð strax og hvaða réttindi eru látin sitja á hakanum. Gallað kerfi – greinum vandann Þegar kerfi sem á að tryggja sjálfstætt líf fatlaðs fólks býr til biðlista eftir sjálfstæðu lífi, þá er það ekki tæknilegt vandamál. Það er réttindavandi. Það má aldrei verða eðlilegt ástand að biðlisti myndast eftir nauðsynlegri þjónustu við fatlað fólk. Auk þess ætti það sjálfkrafa að kalla á viðbrögð, ábyrgð, greiningu og aðgerðir, ef biðlistar myndast. Þá er nauðsynlegt að svara m.a. eftirfarandi spurningum: Hvers vegna er bið eftir þjónustu? Er vandinn skortur á fjármagni? Skortur á pólitískri forgangsröðun? Tafir í þjónustumati? Óskilvirk stjórnsýsla? Óskýr ábyrgð á milli ríkis og sveitarfélaga? Þegar svörin við þessu liggja fyrir þarf að svara næstu spurningu: Hvað ætlum við að gera til að laga vandann? Biðlisti án greiningar er ábyrgðarleysi Biðlisti án tímamarka eru skilaboð til fatlaðs fólks um að líf þess megi bíða og að það sé minna virði en líf annars fólks. Krafan er einföld: Enginn biðlisti án skýringa. Enginn biðlisti án ábyrgðaraðila. Enginn biðlisti án úrræða á biðtíma. Enginn biðlisti án tímasettrar áætlunar um hvernig honum verði eytt. Loforð með fyrirvara Við myndum ekki sætta okkur við að börn væru sett á biðlista eftir grunnskólagöngu. Við myndum ekki sætta okkur við að sveitarfélag segði foreldrum að bíða róleg eftir því að lögbundinn réttur barna þeirra yrði virktur einhverntímann seinna. Við eigum heldur ekki að sætta okkur við að fatlað fólk sé sett á biðlista eftir eigin lífi. Réttindi sem eru endalaust sett á biðlista eru ekki raunveruleg réttindi í lífi fólks. Þau eru loforð með fyrirvara, loforð sem allt of oft eru ekkert meira en innantóm loðorð. Við, fatlað fólk höfum beðið nógu lengi eftir því að loðorð um sjálfstætt líf verði að veruleika. Nú er komið að stjórnmálafólki að greina fyrirstöðurnar og breyta loðorðum í loforð. Höfundur er formaður NPA miðstöðvarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Málefni fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar