„Þetta er allt annað Fram-lið“ Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2026 11:31 Vuk Oskar Dimitrijevic og félagar í Fram halda áfram að heilla í Bestu deildinni. vísir/Diego Halldór Árnason hrósaði liði Fram í hástert í nýjasta þætti Stúkunnar og sagði það gjörbreytt þrátt fyrir litlar breytingar á leikmannahópnum í vetur.
Framarar eru í 3. sæti Bestu deildar karla í fótbolta með þrettán stig eftir fyrstu sex leikina. Þeir unnu Val síðasta föstudag og hafa nú unnið þrjá leiki í röð því áður unnu þeir FH og ÍBV. Þetta er í fyrsta sinn frá því að Rúnar Kristinsson tók við Fram sem liðið vinnur þrjá leiki í röð og þá hafa Framarar raðað inn mörkum, eða skorað alls 18 í fyrstu sex leikjunum. „Rúnar er búinn að gera vel síðustu tvö ár í að koma strúktúr á þetta. Hann fór með Framliðið í fimm manna vörn og lokaði fyrir lekann sem hafði verið á eigið mark. Svo vissi maður ekki hvort það yrði bara meira af því sama núna, því þeir gerðu ekki mikið á markaðnum. En þetta er allt annað Framlið,“ sagði Halldór en brot úr Stúkunni má sjá hér að neðan. Klippa: Framarar halda áfram að heilla Halldór kvaðst afar hrifinn af því sem Fram hefur haft fram að færa í upphafi leiktíðar: „Þeir eru komnir með mikið meira flæði sóknarlega. Menn taka sér skemmtilegar stöður. Menn í varnarlínunni taka sér óvenjulegar stöður; Halli, Kennie, Sigurjón, það er erfitt að eiga við þá. Þeir eru með frábæra miðjumenn, Atli er að koma vel inn í þetta, og svo eru þeir farnir að stíga mikið hærra í pressu,“ sagði Halldór á meðan að sýnd voru brot úr frábærri pressu Framara gegn Val: „Þeir eru að hápressa Val og éta boltann af þeim aftur og aftur. Gerðu það virkilega vel. Þeir hápressuðu Val í 90 mínútur og Valsmenn komust ekki eitt né neitt. Ég hef ekki séð Val gera þetta fyrr í sumar en þeir mættu með þetta plan núna, að ætla að spila sig út úr vörninni, en þeir áttu ekki séns á móti mjög öflugri pressu Framara,“ sagði Halldór.
Besta deild karla Fram Stúkan Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Fleiri fréttir KR skoraði sex og fór á toppinn Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Oliver til FH Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Sjá meira