Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar 13. maí 2026 09:03 Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er ekki sjálfbær, og er undir vaxandi álagi. Skuldahlutföll hafa hækkað og svigrúm til fjárfestinga í grunnþjónustu hefur minnkað. Þetta hefur bein áhrif á getu bæjarins til að fjárfesta í viðhaldi, bæta innviði og þjónusta bæjarbúa. Hver króna sem fer í óhagkvæman rekstur er króna sem nýtist ekki til að bæta bæinn okkar, nýtist ekki til þess að bæta kennslu barnanna, nýtist ekki til þess að laga holurnar í götunni eða til þess að klára hverfin. Þetta snýst um ábyrgð Það er hlutverk kjörinna fulltrúa að fara vel með fjármuni íbúa Hafnarfjarðar. Þar hefur núverandi meirihluti því miður brugðist því trausti sem þeim var sýnt. Við í Viðreisn teljum að Hafnarfjörður þurfi ekki fleiri loforð, heldur skýrari forgangsröðun, ábyrgari fjármál og einfaldari stjórnsýslu. Ábyrgur rekstur er forsenda velferðar Tækifærin til umbóta eru til staðar. Stjórnsýsla Hafnarfjarðar er þunglamaleg og flókin, verkefni skarast og ferlar eru óljósir. Þetta er engum til framdráttar, ekki bæjarbúum og ekki öllu því góða fólki sem vinnur fyrir bæjarfélagið. Það er öllum í hag að gera betur. Við í Viðreins viljum einfalda kerfið og nýta fjármuni betur. Við leggjum áherslu á hagræðingu sem byggir á markvissri greiningu á rekstri, mögulegri sameiningu verkefna, skýrari ábyrgð og mælanlegum markmiðum. Með slíkri nálgun má styrkja fjárhag bæjarins án þess að skerða þjónustu og jafnframt bæta starfsumhverfi þeirra sem vinna fyrir bæinn. Ábyrg stjórnmál fyrir Hafnarfjörð Staða Hafnarfjarðar kallar á yfirvegun, ekki uppboð loforða. Ábyrg fjármál snúast um að horfast í augu við stöðuna, forgangsraða, einfalda og byggja kerfi sem standast tímans tönn. Við í Viðreisn viljum horfa lengra en eitt kjörtímabil. Við ætlum að reka sveitarfélag sem nýtir skattfé af ábyrgð, styrkir grunnþjónustu og tryggir börnum og fjölskyldum stöðugleika til framtíðar. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Karólína Helga Símonardóttir Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er ekki sjálfbær, og er undir vaxandi álagi. Skuldahlutföll hafa hækkað og svigrúm til fjárfestinga í grunnþjónustu hefur minnkað. Þetta hefur bein áhrif á getu bæjarins til að fjárfesta í viðhaldi, bæta innviði og þjónusta bæjarbúa. Hver króna sem fer í óhagkvæman rekstur er króna sem nýtist ekki til að bæta bæinn okkar, nýtist ekki til þess að bæta kennslu barnanna, nýtist ekki til þess að laga holurnar í götunni eða til þess að klára hverfin. Þetta snýst um ábyrgð Það er hlutverk kjörinna fulltrúa að fara vel með fjármuni íbúa Hafnarfjarðar. Þar hefur núverandi meirihluti því miður brugðist því trausti sem þeim var sýnt. Við í Viðreisn teljum að Hafnarfjörður þurfi ekki fleiri loforð, heldur skýrari forgangsröðun, ábyrgari fjármál og einfaldari stjórnsýslu. Ábyrgur rekstur er forsenda velferðar Tækifærin til umbóta eru til staðar. Stjórnsýsla Hafnarfjarðar er þunglamaleg og flókin, verkefni skarast og ferlar eru óljósir. Þetta er engum til framdráttar, ekki bæjarbúum og ekki öllu því góða fólki sem vinnur fyrir bæjarfélagið. Það er öllum í hag að gera betur. Við í Viðreins viljum einfalda kerfið og nýta fjármuni betur. Við leggjum áherslu á hagræðingu sem byggir á markvissri greiningu á rekstri, mögulegri sameiningu verkefna, skýrari ábyrgð og mælanlegum markmiðum. Með slíkri nálgun má styrkja fjárhag bæjarins án þess að skerða þjónustu og jafnframt bæta starfsumhverfi þeirra sem vinna fyrir bæinn. Ábyrg stjórnmál fyrir Hafnarfjörð Staða Hafnarfjarðar kallar á yfirvegun, ekki uppboð loforða. Ábyrg fjármál snúast um að horfast í augu við stöðuna, forgangsraða, einfalda og byggja kerfi sem standast tímans tönn. Við í Viðreisn viljum horfa lengra en eitt kjörtímabil. Við ætlum að reka sveitarfélag sem nýtir skattfé af ábyrgð, styrkir grunnþjónustu og tryggir börnum og fjölskyldum stöðugleika til framtíðar. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar