Aldrei sagt söguna af Social Pete opinberlega Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. maí 2026 10:02 Pétur rifjaði upp árin í Englandi og gælunafnið Social Pete. Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir söguna af Social Pete og heimsóknum sínum til Eiðs Smára í London sanna. Sagan sé þó eilítið öðruvísi en oft hefur komið fram.
Pétur ræddi sannleiksgildi sögunnar um gælunafnið í nýjasta þætti skemmtiþáttarins Af vængjum fram, þangað sem frambjóðendur til borgarstjórnar mæta og gæða sér á eldsterkum kjúklingavængjum milli þess sem þeir svara krefjandi spurningum oft á léttari nótum. Þangað mætti hann ásamt Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknar í Reykjavík. Sönn en öðruvísi Ýmsir hafa heyrt söguna af Pétri og árum hans í knattspyrnunni í Englandi. Var þáttastjórnandi grátbeðinn um að spyrja Pétur nánar út í málið í aðdraganda þáttarins. Sagan segir að Eiður Smári hafi farið út á lífið með John Terry og Frank Lampard fótboltamönnum í London, Eiður tók félaga sinn Pétur Marteinsson með. Var þar margt skrafað en Pétur vildi helst bara tala um borgarskipulagsmál. Nokkru síðar spiluðu Íslendingar landsleik við Englendinga og mættust þá félagarnir í leikmannagöngunum. Terry og Lampard göptu af undrun þegar þeir sáu Pétur og kölluðu: Social-Pete! Þeir höfðu þá enga hugmynd um að Pétur væri knattspyrnumaður. Pétur, er þetta sönn saga? „Hún er sönn. En hún er öðruvísi. Þegar ég var að spila með Stoke City þá var ég meiddur basically allan tímann og Eiður að spila með Chelsea, þannig ég fór oft um helgar niður í Chelsea. Og ef ég var ekki hjá Eiði þá var það Sveppi.“ Þegar þarna var komið í þættinum fór sterk sósan að bíta í Pétur sem varð að gera hlé á máli sínu. „Ég hef aldrei sagt þessa sögu opinberlega sjálfur og hún er bara urban myth. Ég ætla bara að leyfa henni að vera þannig. En hún er ekki ósönn. Social-Democrat Pete.“ Alla þætti í þessari seríu Af vængjum fram má horfa á á myndbandsvef Vísis og á Sýn+. Sérstakur þáttur þar sem bestu augnablikin eru tekin saman verður sýndur í línulegri dagskrá á Sýn í kvöld miðvikudag 13. maí klukkan 19:10, fyrir kappræður Sýnar með oddvitum í Reykjavík sem hefjast 19:30 í beinni útsendingu.
Af vængjum fram Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Tengdar fréttir Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Ari Edwald segir að umtalað mál úr fortíð hans hafi ekki þvælst fyrir honum í kosningabaráttunni fyrir Miðflokkinn í Reykjavík, hann einblíni á það sem sé fyrir framan hann. Ari segir velgengni sína á Tik-Tok að þakka ungum mönnum og segist nota orð við þá sem hann skilji ekki sjálfur. 7. maí 2026 09:01 Sanna hét áður Díana Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar. 6. maí 2026 10:01 „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð. 30. apríl 2026 09:01 Mest lesið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Sjá meira
Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Ari Edwald segir að umtalað mál úr fortíð hans hafi ekki þvælst fyrir honum í kosningabaráttunni fyrir Miðflokkinn í Reykjavík, hann einblíni á það sem sé fyrir framan hann. Ari segir velgengni sína á Tik-Tok að þakka ungum mönnum og segist nota orð við þá sem hann skilji ekki sjálfur. 7. maí 2026 09:01
Sanna hét áður Díana Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar. 6. maí 2026 10:01
„Ég stöðvaði þessar samfarir“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð. 30. apríl 2026 09:01