Ætlum við að kjósa auðlindirnar okkar úr landi? Ágústa Ágústsdóttir skrifar 12. maí 2026 09:12 Næstkomandi laugardag, þann 16. maí fáum við tækifæri til að kjósa þá er við teljum hæfasta til að þjóna hagsmunum sveitarfélags okkar sem best. Því er nauðsynlegt að vanda valið og hafa í huga að kosningar til sveitarstjórnar eru ólíkar Alþingiskosningum að því leyti að margir listar á landsbyggðinni samanstanda af einstaklingum úr ýmsum áttum, óbundnum stjórnmálaflokkum. Því geng ég eins og margir, óbundin til kosninga. Að þessu sinni mun mitt atkvæði snúast um eitt. Málefni sem stendur ofar öllu öðru í núinu og varðar framtíð okkar sem sjálfstæða þjóð. Orkuauðlindirnar okkar. Stórfyrirtæki í meirihlutaeigu erlendra fjarmálaafla í skjóli íslenskra kennitala, herja nú á landið sem aldrei fyrr undir því yfirskyni að risavaxin vindorkuver, með stórvöxnum vindmyllum sem þekja tugi hektara svæði víðs vegar um landið muni bæta hag íbúa. Land með jafn veikburða lög og veikburða stjórnsýslu sem Ísland ber vitni um, er kemur að orkuinnviðum landsins, virkar sem segull á erlend gróðraöfl sem sjá sér gott til glóðarinnar. Þá er auðvelt fyrir öfluga lobbíista að sannfæra “mögulega viljugt” framafólk í pólitík á sérstökum fundum um ágæti vindmylla þegar peningataskan er opnuð og fjársveltum sveitarfélögum leyft að “kíkja í pakkann”. Á sérstökum íbúafundum mæta lobbíistarnir tilbúnir með gullræðurnar og þaulæfði kennarasvipurinn er fínpússaður þegar fræða á íbúana um Hagfræði 101. Þ.e. þá hagfræði er segir að meiri samkeppni á innanlandsmarkaði leiði til lægra verðs til neytenda. Ég benti hagfræðikennaranum á að ekki þyrfti að leita langt til að sjá hvernig slík hagfræðikenning virkaði í raunveruleikanum í gjörvallri Evrópu þar sem raforkuverð til neytenda hefði rokið upp úr öllu valdi með tilkomu vindorkuvera. Þá sigu kennaragleraugun örlítið og til að afvegaleiða umræðuna var mér bent á hvernig símreikningar landsmanna hér á landi hefðu lækkað með tilkomu einkaaðila inn á markaðinn á sínum tíma sem keyptu ríkið út. Einhvern veginn virtist hagfræðikennarinn ekki átta sig á grundvallarmun almennrar þjónustu og svo auðlindum lands, en það get ég fyrirgefið því hagfræði getur jú verið dálítið flókin fyrir suma. Ég benti kennaranum góðfúslega á að það væri þá aldeilis orðin fortíðarþráhyggja í orkugeiranum er hann lofaði fyrirkomulag dagsins í dag, þar sem orkusalar gætu nú stjórnað rafmagnsverði til neytenda með því að bjóða ódýrara rafmagn á næturna. Þarna birtist einmitt nákvæmlega sama hagfræðin og neytendum bauðst á sínum tima þegar ódýrast var að hringja seint á kvöldin og á næturnar og flestir reyndu að hringja sem minnst á dýrasta tímanum. Já auðvitað herra kennari, munu flestir fara að þvo þvottinn sinn á næturnar og þakka í huganum orkusalanum fyrir hugulsemina. Góð hagfræði! Er ég svo benti á þá staðreynd sem fjallað hefur verið um í vönduðum og ítarlegum greinum, ekki bara hér á landi, hvernig einmitt þessir “samkeppnisaðilar” í vindorkuiðnaðinum borga landeigendum háar upphæðir fyrir að stöðva vindorkutúrbínur í þeim eina tilgangi að búa til aukna eftirspurn eftir rafmagni sem þ.a.l. hækkar orkuverð á markaði og skapar aukinn gróða til orkufyrirtækjanna, stóð nú ekki á svari frá hagfræðikennaranum. “Jú sjáðu til, það mun aldrei gerast hér á landi því hér er nánast engin samkeppni.” Einmitt herra kennari. Þarna lauk hagfræðitíma dagsins! Það er á hreinu hvert mitt X fer þann 16. maí næstkomandi. Það fer til þess lista sem hefur þor og kjark til að lýsa opinberlega yfir andstöðu sinni við uppbyggingu vindorkugarðs í eigu erlendra stórfyrirtækja. Okkur bar gæfa til þess á sínum tíma að vernda sjávarútvegsauðlindir okkar fyrir erlendum kaupmönnum. Hvers vegna gerum við það ekki við aðrar auðlindir okkar? Höfundur er íbúi í Öxarfirði, sveitarfélaginu Norðurþing. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Norðurþing Ágústa Ágústsdóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar