Blikar knúðu fram oddaleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2026 21:56 Vojtéch Novák (nr. 72) var stigahæstur í liði Breiðabliks gegn Sindra. vísir/ernir Breiðablik vann öruggan sigur á Sindra, 90-80, í fjórða leik liðanna í úrslitum umspils um sæti í Bónus deild karla í kvöld. Liðin mætast í oddaleik á Höfn á fimmtudaginn.
Sindri gat tryggt sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn með sigri í Smáranum í kvöld. En Blikar höfðu lítinn áhuga á því og sýndu tennurnar. Vojtéch Novák skoraði 26 stig og tók sjö fráköst í liði Breiðabliks sem leiddi nánast allan tímann. Myles Mccrary sækir að körfu Blika.vísir/ernir Blikar voru fimm stigum yfir eftir 1. leikhluta, 28-23, og í hálfleik var munurinn sjö stig, 53-46. Í 3. leikhluta skoruðu Sindramenn aðeins ellefu stig, gegn tuttugu stigum Blika sem voru í góðri stöðu fyrir lokaleikhlutann, 73-57. Þar löguðu gestirnir frá Höfn stöðuna aðeins en sigur heimamanna var ekki í hættu. Það kemur í ljós á fimmtudaginn hvort Breiðablik eða Sindri leikur í Bónus deildinni á næsta tímabili.vísir/ernir Fimm leikmenn Breiðabliks skoruðu tólf stig eða meira í leiknum. Blikar settu niður tólf þriggja stiga skot í 26 tilraunum (46 prósent) á meðan hittu Sindramenn aðeins úr átján prósent þriggja stiga skota sinna. Jason Gigliotti skoraði 26 stig fyrir Sindra og tók sjö fráköst. Næstu menn voru aðeins með tólf stig.
Bónus-deild karla Breiðablik Sindri Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Golf Leik lokið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Íslenski boltinn Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Fleiri fréttir „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Sjá meira