Gróðurhúsin í Hveragerði: Lifandi hluti sjálfsmyndar bæjarins Njörður Sigurðsson skrifar 11. maí 2026 16:17 Gróðurhús hafa frá upphafi verið eitt helsta einkenni byggðar í Hveragerði. Í þeim hafa grænmeti og blóm verið ræktuð með aðstoð jarðhita og síðar einnig rafmagns. Auk þess hafa garðyrkjustöðvar orðið vinsælir ferðamannastaðir og má þar helst nefna Eden og Blómaborg. Á áttunda og níunda áratug 20. aldar voru um 40 garðyrkjustöðvar í Hveragerði sem samtals töldu um 50.000 fermetra að flatarmáli. Síðan þá hefur bæði gróðurhúsum og garðyrkjustöðvum fækkað. Ástæður þess eru margvíslegar, m.a. erfiðari rekstrarskilyrði ylræktar á landinu, aukin samkeppni við stærri framleiðendur, breyttar ræktunaraðferðir og stærðir húsanna, ásókn í lóðir undir íbúðarhúsnæði og áhrif þéttbýlisþróunar á skipulag. Þá hafa garðyrkjustöðvar eyðilagst og verið rifnar í kjölfarið, t.d. eldsvoði í Eden árið 2011. Í upphafi árs 2026 eru um 27.000 fermetrar af gróðurhúsum í Hveragerði og hefur þeim því fækkað um 46% frá því að þau voru flest, þar af hefur fækkunin verið um 20% frá árinu 2006. Nýtt aðalskipulag Hveragerðisbæjar Á þessu kjörtímabili hefur verið unnið að endurskoðun á aðalskipulagi Hveragerðisbæjar sem gildir 2025-2037 og var það samþykkt á fundi bæjarstjórnar í apríl síðastliðnum. Aðalskipulag er stefnumótandi skipulagsáætlun fyrir sveitarfélag þar sem fram kemur framtíðarsýn og stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun og byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi auk áherslna í umhverfismálum. Eitt af mikilvægum stefnuatriðum í nýju aðalskipulagi eru gróðurhúsin sem hafa sett svip sinn á bæjarmyndina og eru mikilvægur hluti af sérstöðu og sjálfsmynd bæjarins. Í greinargerð aðalskipulagsins er bent á að gróðurhúsum kunni að fækka enn frekar á næstu árum þar sem stór hluti þróunarreita er á lóðum þar sem gróðurhús standa. Áskorun, metnaður og stefna bæjaryfirvalda er því þríþætt við að styrkja ásýnd gróðurhúsa í Hveragerði: að stuðla að því að ylrækt hafi áfram stað í bænum, að varðveita tiltekin gróðurhús sem eru sögulega mikilvæg og að ný byggð taki mið af þessari byggingartegund þar sem við á. Áframhaldandi ylrækt Ylrækt er enn mikilvægur atvinnuvegur í Hveragerði, og því skiptir máli að skipulag bæjarins tryggi að hún eigi áfram sinn sess í byggðinni. Ylrækt og garðyrkja hafa frá fyrstu tíð sett sterkan svip á Hveragerði og mótað bæði bæjarmynd og samfélagslíf. Á 20. öld var Hveragerði óumdeilanlega miðstöð garðyrkjunnar á Íslandi, þar sem Garðyrkjuskóli ríkisins starfaði í næsta nágrenni og gegndi lykilhlutverki í þróun greinarinnar. Í nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir að núverandi garðyrkjustöðvar geti starfað áfram og gert ráð fyrir nýjum lóðum undir garðyrkjustöðvar á athafnasvæðum. Varðveislumat og nýting gróðurhúsa Í greinargerð Péturs Ármannssonar, arkitekts, um verndun húsa og yfirbragð byggðar í Hveragerði, sem var hluti af aðalskipulagsgögnum árið 2005, benti hann á að „miðbær Hveragerðis án [gróðurhúsa] yrði vart svipur hjá sjón“ og af „sögulegum og umhverfislegum ástæðum er ekki æskilegt að ylrækt flytjist alfarið burt úr miðbænum“. Það er því ábyrgð bæjaryfirvalda að stuðla að því að gróðurhús hverfi ekki úr miðbæ Hveragerðis og bæjarmyndinni. Árið 2018 samþykkti bæjarstjórn, að frumkvæði undirritaðs, að gerð skyldi úttekt á öllum gróðurhúsum bæjarins til að kanna ástand þeirra, gerð og gildi fyrir bæjarmyndina. Varðveislumat þetta var unnið árið 2020 og er það mikilvægt verkfæri í skipulagsvinnu bæjarins. Með því geta bæjaryfirvöld byggt ákvarðanir sínar á faglegu mati um varðveislugildi einstakra gróðurhúsa. Í niðurstöðum matsins kom fram að fylgjast bæri náið með þróun gróðurhúsa í bænum og að leggja skyldi óskir um niðurrif gróðurhúsa með miðlungs varðveislugildi fyrir bæjarstjórn áður en leyfi er veitt. Þetta verklag stuðlar að skipulegri og meðvitaðri stýringu í skipulagsferlinu og að mikilvægur byggingararfur glatist ekki. Í greinargerð með nýju aðalskipulagi er lögð áhersla á að við deiliskipulagsgerð þróunarreita skuli leitað leiða til að tryggja varðveislu hluta byggingararfs gróðurhúsanna. Þar er bent á möguleika á að ef ylrækt leggst af í tilteknum gróðurhúsum megi breyta þeim í verslanir, kaffihús eða annað þjónustuhúsnæði, eða nýta þau sem sameiginleg útivistarsvæði innan nýrra fjölbýlishúsabyggða. Þannig má gefa eldri mannvirkjum nýtt hlutverk og skapa áhugaverða blöndu nýrrar byggðar og sögulegra mannvirkja. Gróðurhús sem hluti af byggingararfi og framtíðarsýn Að lokum er í nýju aðalskipulagi bent á að æskilegt sé að hönnun nýrra húsa innan tiltekinna reita taki mið af eða vísi til byggingararfs gróðurhúsanna. Með því má varðveita sjónræna og menningarlega samfellu í bæjarmyndinni og undirstrika sérstöðu Hveragerðis sem bæjar sem hefur byggst upp í nánum tengslum við jarðhita og ylrækt. Stefna um varðveislu gróðurhúsarfleiðar Hveragerðisbæjar Á fundi bæjarstjórnar þann 9. apríl 2026 var samþykkt tillaga Okkar Hveragerðis og Framsóknar um stofnun hóps til að vinna stefnu um varðveislu sögu og ásýndar gróðurhúsaarfleiðar Hveragerðis. Með slíkri stefnu verður betur hægt að gæta að sögu og ásýnd gróðurhúsaarfleiðar Hveragerðis í þeirri miklu uppbyggingu sem horfir við bænum í nánustu framtíð. Skipað verður í hópinn strax að loknum kosningum og mun hann því taka til starfa á næstu vikum. Með þessu skrefi er sýnt í verki að gróðurhúsin eru ekki einungis minjar um liðna atvinnuhætti heldur lifandi hluti af sjálfsmynd bæjarins. Með markvissri stefnumótun og vönduðu skipulagi gefst tækifæri til að varðveita og þróa þessa sérstöðu áfram fyrir komandi kynslóðir. Höfundur er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Njörður Sigurðsson Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar