„Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. maí 2026 13:12 Anna Kristjánsdóttir er íbúi á Tenerife. Ap/vísir „Við höfum engar áhyggjur af þessu fyrir okkur. Því að þetta er það öruggt með skipið. Lífið heldur bara áfram sinn vanagang.“
Þetta segir íslenskur íbúi á Tenerife sem býr um 20 kílómetrum frá Grandilla. Hollenska skemmtiferðaskipið Hondius þar sem Hantaveirusmit hafa komið upp lagði, við höfn Tenerife um klukkan hálf sex í morgun. Skipið fær ekki að leggjast að bryggju þar sem þrír hafa látist vegna Hantaveiru um borð og fimm önnur smit komið upp. Það liggur því við akkeri í Grandilla á Tenerife, skammt frá alþjóðaflugvelli eyjunnar á suðurhluta hennar. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig ferlið ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust einkennalausir og er hluti farþega þegar kominn í land en þeir verða fluttir á flugvöllinn þar sem förinni er heitið til þeirra heimalanda. Um þrjátíu manns úr áhöfninni verða áfram um borð og sigla skipinu til heimahafnar í Hollandi. Anna Kristjánsdóttir er íbúi á Tenerife og segist lítið kippa sér upp við komu skipsins til landsins. Hún hafi lítið orðið vör við veru þess við höfnina um tuttugu mínútur frá heimili hennar. „Farþegarnir fara allir í einhvern búning áður en þeir fara frá borði og fara beint upp í rútu og síðan beint út í vél. Þannig að þetta kemur ekkert nálægt íbúm. Það er engin hætta fyrir okkur sem búum hérna og enginn hefur neinar áhyggjur af þessu. Lífið heldur bara áfram sinn vanagang. Það eru helst yfirvöld sem eru kannski stressuð.“ Að hennar mati er að sumu leyti gert of mikið úr veirunni í fjölmiðlum og annarri umfjöllun. Hún telur enga hættu á að hún breiðist út. Fjölmiðlar alls staðar að úr heiminum raða sér upp til að grípa myndir af skipinu.Ap Hún kveðst ánægð með skilaboðin sem bárust frá Tedros Ghebreyesus, yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sem bárust í gær. „Hann talaði um að það væri öruggt að það væru engin nagdýr um borð og það er jákvætt. “ Hún segir smá eril við höfnina þar sem skipið er lagt. „Þeir eru búnir að loka öllu saman, þannig að það verður ekkert að sjá. Ég hef ekki orðið vör við nein mótmæli en það er mjög strangt eftirlit. Það er stórt björgunarskip sem er látið liggja fyrir utan höfnina til að passa að enginn komi utan frá að þessu.“
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Íslendingar erlendis Heilbrigðismál Kanaríeyjar Spánn Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira