Rændu lið sitt titilfögnuði og eiga yfir höfði sér lífstíðarbann Aron Guðmundsson skrifar 10. maí 2026 09:18 Ótrúlegar senur og fótboltanum ekki til framdráttar í Tékklandi Vísir/Samsett Einhverjir stuðningsmenn Slavía Prag í Tékklandi eiga yfir höfði sér lífstíðarbann frá leikjum félagsins sökum hegðunar sinnar í borgarslagnum gegn Sparta Prag í gær þar sem lið þeirra var nokkrum mínútum frá því að vinna tékknesku deildina.
Komið var fram á sjöundu mínútu uppbótartíma leiksins og Slavía Prag að sigla heim meistaratitlinum þegar að fjöldinn allur af stuðningsmönnum liðsins tóku upp á því að hlaupa inn á völlinn. Nokkrir þeirra kusu að stofna til óláta. 🚨🇨🇿 Meanwhile in the Prague derby... the Slavia Prague fans stormed the pitch in the last minutes of the match and charged towards the Sparta Prague fans. 😳 pic.twitter.com/ALDzsNvwqG— EuroFoot (@eurofootcom) May 10, 2026 Kveiktu þeir á blysum og köstuðum nokkrum þeirra í átt að stuðningsmönnum Sparta Prag. Þá virtist eitt blysið hafna í höfði Jakub Surovcik, markverði liðsins. Dómarar leiksins ákváðu með öllu réttu að stöðva leikinn og var hann ekki kláraður. Titillinn því ekki í höfn hjá Slavía Prag og aðeins nokkrir ólátabelgir úr hópi stuðningsmanna félagsins sem komu í veg fyrir það. Formaður félagsins, Jaroslav Tvrdik, hefur heitið því að hafa upp á sökudólgunum og dæma þá í lífstíðarbann frá leikjum félagsins. Fyrir hönd Slavía Prag bað hann alla þá sem komu að leiknum afsökunar. „Gildi Slavía Prag eru ekki hatur og ofbeldi. Við skörumst ekki undan ábyrgð í þessu máli og það verða afleiðingar. Þetta er erfiðasta stundin í sögu félagsins í seinni tíð. Þetta er ekki fótbolti. Þetta er ekki Slavía. Það er skömm að þessu.“ Óvíst er á þessari stundu hverjar afleiðingarnar verða fyrir Slavía Prag í þessu máli eða hvenær leikur liðsins við Sparta Prag verður kláraður. Átta stig skilja liðin að í fyrsta og öðru sæti tékknesku deildarinnar þegar að fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.
Tékkland Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira