Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Árni Jóhannsson skrifar 9. maí 2026 22:02 Arnar Guðjónsson reynir að koma skilaboðum til sinna manna. Vísir / Guðmundur Þjálfari Tindastóls, Arnar Guðjónsson, talaði um að áætlun hans hafi verið til þess að hans menn byrjuðu einvígið um Íslandsmeistaratitilinn herfilega. Tindastóll var 15 stigum undir í hálfleik en náðu að rétta úr kútnum og töpuðu fyrsta leiknum með fimm stigum 85-80. „
Bara léleg uppsetning í byrjun hjá mér. Við vorum svo ragir sóknarlega þar sem við töpuðum mikið af boltum sem enduðu í auðveldum körfum fyrir þá“, sagði þjálfarinn þegar hann var spurður hvað gerðist hjá Tindastól sem varð til þess að þeir voru 15 stigum undir í hálfleik. Hann var þá spurður að því hvað breyttist hjá hans mönnum í seinni hálfleik en Tindastóll komst yfir í lok þriðja leikhluta og allt gat gerst. „Við breyttum bara planinu heilt. Ákefði varð meiri og þá varð þetta skömminni skárra.“ Er það þá ákefðin sem Tindastóll þarf að passa upp á að sé í toppi frá byrjun í næsta leik. „Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum. Við þurfum að vera aðeins skynsamari. Við erum að spila hratt en við þurfum líka að vera þolinmóðir á köflum. Ég held að við séum með 16 tapaða bolta sem verða að sniðskotum hinum megin. Þannig að við þurfum að passa það. Svo þurfum við bara að skoða það sem við þurfum að gera betur.“ Arnari fannst ekkert skrýtið að hann væri að fara sparlega með Adomas Drungila, sem hefur spilað í stuttum köflum í úrslitakeppninni. „Hann spilar 25 mínútur. Hann er 206 cm og 30 og eitthvað ára. Það er bara erfitt að hreyfa þetta og við viljum frekar hafa hann kraftmikinn á meðan hann er inn á. Svo gekk bara vel þegar við vorum litlir með Ragga og Taiwo.“ Í lokin var Arnar spurður út í Davis Geks sem fékk úr litlu að moða og hvort það væri eitthvað sem þyrfti að hafa áhyggjur af. „Við þurfum bara að fá betri skot heilt yfir. Ég held að það sé málið. Það skiptir ekki máli hver fær skotin. Það er ekki það sem við erum að pæla í, bara að við séum að búa til góð skot.“
Tindastóll Bónus-deild karla Mest lesið Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Segja Breka á leiðinni til Benfica Handbolti Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Fótbolti Børge Lund tekur við stórliði Kiel Handbolti Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Fótbolti Hollendingar hjálpa Frökkum við að halda Ólympíuleikana Sport „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Fótbolti Fleiri fréttir Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Sjá meira