Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. maí 2026 17:17 Tedros Ghebreyesus er yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO. AP Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fullvissaði íbúa Tenerife um að hættan sem stafaði af skemmtiferðaskipinu MV Hondius sem leggur að landi þar á morgun eftir að hantaveira dró þar þrjá til bana, væri lítil og að enginn um borð sýndi einkenni.
Tedros Adhanom Ghebreyesus skrifaði í dag opið bréf til íbúa eyjarinnar um komu skipsins sem er væntanlegt í höfn á Tenerife á morgun. „Ég veit að þið eruð áhyggjufull. Ég veit að þegar þið heyrið orðið „faraldur“ og horfið á skip nálgast strendur ykkar, vakna minningar sem ekkert okkar hefur að fullu unnið úr,“ segir hann. „En ég vil að þið skiljið mig vel: þetta er ekki önnur kórónuveira. Lýðheilsuváin af völdum hantaveiru er áfram lítil. Kollegar mínir og ég höfum sagt þetta undanbragðalaust og nú segi ég það við ykkur aftur,“ skrifar Tedros í bréfinu. Hann undirstrikar að enginn farþegi sýni einkenni sjúkdóms af völdum hantaveiru. Sömuleiðis að sérfræðingur á vegum stofnunar sinnar sé um borð og að spænsk yfirvöld hafi skipulagt móttöku farþega og áhafnar skipsins gaumgæfilega. Hann þakkaði forsætisráðherra Spánar persónulega fyrir að hafa samþykkt að taka við skipinu. Hann sagði Spánverja sýna samstöðu og sinna siðferðislegri skyldu sinni. „Ég verðþarna sjálfur. Ég hyggst ferðast til Tenerife til að fylgjast með þessari aðgerð sjálfur, standa við hlið heilbrigðisstarfsfólks, hafnarstarfsfólks, hafnarstarfsfólk og annars starfsfólks, og votta þessari eyju virðingu mína sem brugðist hefur við þessum erfiðu aðstæðum af reisn, samstöðu og samúð,“ skrifar Tedros.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Kanaríeyjar Spánn Heilbrigðismál Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira