Sátu um tóman banka í sex tíma Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2026 14:35 Lögregluþjónn gengur frá byssu sinni eftir umsátrið. AP/Michael Probst Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir.
Um klukkan níu í morgun, að staðartíma, er einn maður sagður hafa gengið upp að ökumanni brynvarins bíls, sem var að flytja reiðufé til eða frá bankanum, ógnað honum og þvingað hann inn í bankann. Við það hófst umsátur, miðað við það sem lögreglan sagði í morgun. Bankinn var umkringdur og sagði talsmaður lögreglunnar að talið væri að nokkrir ræningjar héldu ótilgreindum fjölda fólks inni í bankanum. Sjá einnig: Bankarán varð að gíslatöku Lögreglan bað fólk um að halda sig heima og sagði að ógnin gagnvart bæjarbúum væri takmörkuð. Lögreglan hefði stjórn á aðstæðum. Svo virðist sem það hafi ekki reynst rétt. Í frétt Bild segir að eftir um sex klukkustundir hafi sérsveitarmenn ruðst inn í bankann. Þar hafi engir ræningjar fundist heldur eingöngu tveir starfsmenn bankans sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu bankans. Enn sem komið er eru upplýsingar um stöðuna í Sinzig nokkuð óljósar. Ekki er vitað hve margir ræningjarnir voru, hvort þeir komust undan með eitthvað þýfi eða af hverju lögreglan taldi að þeir væru inni í bankanum með gísla. Til stendur að ræða við starfsmennina tvo sem fundust inni í hvelfingunni. Þá stendur yfir leit að ræningjunum og er ekki talið að þeir séu í nánd við bankann.
Þýskaland Erlend sakamál Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira