Oddvitaáskorunin: Skipti óvart yfir á ensku á tali við heyrnalausan Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. maí 2026 17:30 Eyþór fór holu í höggi á golfvellinum í Eyjum. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Eyþór Harðarson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Ég heiti Eyþór Harðarson og er oddviti framboðs Sjálfstæðisflokksins. Ég er 62 ára, giftur Laufeyju Grétarsdóttur og á tvö uppkomin börn og barnabörn. Ég starfa sem útgerðarstjóri og er menntaður rafmagnstæknifræðingur frá Þýskalandi. Ég hef áratuga reynslu úr atvinnulífi og góða reynslu úr bæjarmálum, þar sem ég var varabæjarfulltrúi og sat í umhverfis og skipulagsráði 2018-2022. Kjörtímabilið 2022-2026 verið oddviti sjálfstæðisflokksins og átt sæti í bæjarráði auk bæjarstjórnar. Mig langar að leggja mitt af mörkum til að tryggja skynsama nýtingu fjármuna, við uppbyggingu sterkra innviða fyrir samfélagið. Ákvarðanir þurfa að vera teknar af ábyrgð og yfirvegun og með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Áhugamálin eru íþróttir almennt, en horfi mest á handbolta og svo hef ég spilað golf frá unga aldri. Umhverfið í Eyjum býður svo auðvitað uppá frábæra göngutúra. Ég myndi lýsa mér sem raunsæjum, lausnamiðuðum og ábyrgum einstaklingi. Ég er vanur því að vinna við krefjandi aðstæður og gefst seint upp fyrr en verkefni eru kláruð með góðum árangri. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Kópavogi“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Glæpur og refsing eftir rússneska rithöfundinn Fjodor Dostojevskij. Svo verð ég að nefna Reisubók Guðríðar Símonardóttur eftir Steinunni Jóhannesdóttur.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ætli maður myndi ekki bara fresta götuframkvæmd um eitt ár.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Það færi beina leið í að græja eina götu og endurnýja lagnakerfi sem hefur beðið alltof lengi.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Heimsmeistarinn“ Eyþór er heimsmeistari í gúrku. Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Oftast betra að hringja.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Hef ekki áttað mig á því ennþá.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Ég gæti orðið sérfræðingur í að leiða fólk hjá mér sem mér finnst leiðinlegt og gleyma fljótt af hverju mér finnst þau leiðinleg. Átta mig ekki alveg á því hvaða starfsheiti þessi sérfræðingur fengi. Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Það er ómögulegt að átta sig á því núna.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Bað hana að rýna nýlegan samning strandríkja og íslenska ríkisins vegna makrílveiða 2026.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? „Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? Lífið yrði einfaldara ef við náum bara hreinum meirihluta og þess vegna ætla ég bara að vinna að því og hugsa ekki um neitt annað.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Helstu mistök mín í lífinu hafa átt sér stað á golfvellinum. Svo má ekki gleyma því að ég svissa yfir á ensku þegar ég hitti heyrnalaust fólk.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Sem heimamaður þá segir maður nánast allt. Mannlífið, náttúrufegurðin, þjóðhátíðin, íþróttastarfið, atvinnulífið osfr.“ Eyþór Harðarson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum Hvað borðar þú í morgunmat? „Fæ mér kaffibolla í startið og svo er það ristað brauð og egg um kl 10 í vinnunni.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Það fer allt of mikill tími okkar í að berjast fyrir tilvist okkar með málefnin sem eru á höndum ríkisins.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Klára öll málin sem viðkoma vatnslögnum milli lands og Eyja. Náum að þrýsta á ríkið að klára hafnargerðina í Landeyjarhöfn. Hefja gerð stórskipahafnar norður af Eiðinu.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Starting over með John Lennon – en gæti nefnt ca. 100 lög allt eftir því hvaða stemming er í gangi.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Ég hefði viljað sjá alla stjórnsýslu Vestmannaeyjabæjar á einum stað á Ægisgötu 2, 3.hæð.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Dóri Popp. Notaði þetta nafn í glensi á Hallærisplaninu á sínum tíma og féll það í grýttan jarðveg. Vinir mínir hafa notað það síðan við hátíðleg tækifæri.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Fara með ábyrgum hætti með sameiginlega sjóði sveitarfélagsins– sem er skattfé bæjarbúa.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Vestmannaeyjar Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Fleiri fréttir Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Sjá meira