Lengi býr að fyrstu gerð: Hvað er opinn leikskóli? Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar 8. maí 2026 13:01 Eitt af loforðum okkar jafnaðarmanna í Ísafjarðarbæ er að koma á fót opnum leikskóla, en hvað er opinn leikskóli? Opinn leikskóli er rými þar sem foreldrar 0-5 ára barna geta komið með börn sín í umhverfi þar sem börnin geta leikið sér og foreldrar kynnst öðrum foreldrum í sama lífsfasa. Börnin eru á ábyrgð foreldra, en starfsmaður á vegum sveitarfélagsins getur tekið frumkvæði að ýmsum viðburðum. Að rjúfa einangrun foreldra í fæðingarorlofi er ekki einungis gott fyrir foreldrana sjálfa heldur græða börnin á því að foreldrar þeirra fái að fylla á félagslega tankinn. Félagsleg einangrun er stór áhættuþáttur fyrir fæðingarþunglyndi, en talið er að 10% mæðra og feðra fái fæðingarþunglyndi. Við sem höfum verið í fæðingarorlofi vitum að það getur verið einmanalegt að vera einn heima með lítið barn, hvað þá í vondu veðri á dimmum dögum þegar erfitt getur verið að fara í göngutúra. Síðan má færa ágætis rök fyrir því að þetta sé jákvætt fyrir sambönd nýbakaðra foreldra að báðir hafi færi á að vera félagslega virkir. Opinn leikskóli er starfsemi sem þekkist á vegum bæði sveitarfélaga og félagasamtaka víða á Norðurlöndunum. Hann er mikið sóttur af aðkomufólki, en erfitt getur verið að kynnast nýju fólki á nýjum stað þegar baklandið er lítið og fáir sem geta passað fyrir mann. Í opnum leikskóla skapast vettvangur þar sem fólk í svipuðum lífsaðstæðum fær að kynnast, óháð uppruna. Þá komast foreldrar af erlendum uppruna snemma í íslenskt málumhverfi með börnin sín í opnum leikskóla og geta sömuleiðis spurt starfsmanninn um ýmis mál sem koma upp þegar aðlagast þarf nýjum stað. Að hafa starfsmann á vegum sveitarfélagsins í opnum leikskóla gerir sveitarfélaginu einnig kleift að grípa viðkvæm mál snemma með því til dæmis að benda foreldrum í viðkvæmri stöðu á aðstoð eða úrræði ef það á við. Þá getur sveitarfélagið nýtt opna leikskólann sem vettvang til þess að koma með gagnlega fræðslu til foreldra eða halda námskeið fyrir foreldra í rýminu þegar það á við. Því fyrr sem við styðjum foreldra í hlutverki sínu, þeim mun meira forvarnargildi hefur það fyrir barnið. Þetta þarf ekki að kosta mikið, það er til að mynda hægt að finna rými í húsnæði sem bærinn á nú þegar. Þetta er ódýr lýðheilsuaðgerð sem er til þess fallin að bæta lífsgæði og andlega heilsu nýbakaðra foreldra í samfélaginu okkar, heimamenn jafnt sem aðkomufólk. Setjum X við S þann 16. maí. Höfundur er lýðheilsufræðingur og skipar 11. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ísafjarðarbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar