Húsnæði á ekki að vera happdrætti fyrir ungt fólk Lilja D. Alfreðsdóttir skrifar 6. maí 2026 15:15 Ríkisstjórnin hefur ekkert raunhæft plan í húsnæðismálum og er að bregðast ungu fólki á þungum og erfiðum húsnæðismarkaði. Ströng lánþegaskilyrði gera mörgum ungum fyrstu kaupendum nánast ómögulegt að kaupa eigið húsnæði án stuðnings. Hlutdeildarlánakerfi Framsóknar er mikilvæg lausn við þessum vanda, en ríkisstjórnin þarf að standa sig betur. Þegar umsækjendur sem uppfylla öll skilyrði þurfa að treysta á handahófsútdrátt til að fá hlutdeildarlán er ljóst að kerfið er vanfjármagnað. Það er pólitísk ákvörðun sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ber ábyrgð á. Samkvæmt upplýsingum frá HMS voru um rúm 40% sem fékk úthlutað hlutdeildarláni. Af 58 fullgildum umsóknum fékk aðeins hluti umsækjenda úthlutun, eftir að dregið var á milli þeirra annan mánuðinn í röð. Slík staða á aldrei að koma upp í kerfi sem á að tryggja ungu fólki raunhæft og jafnt aðgengi að húsnæði. Afleiðingarnar eru augljósar. Stór hópur ungs fólks býr enn í foreldrahúsum eða situr fastur á leigumarkaði, þar sem engin eignamyndun á sér stað. Þetta gerist þrátt fyrir að greiðslubyrði margra myndi oft lækka við það að komast í eigið húsnæði. Á sama tíma eykst óvissa hjá þeim sem hafa þegar tryggt sér kauptilboð með tilheyrandi áhyggjum og óþægindum. Skortur á fyrirsjáanleika er algjör og hann er alvarlegur.Hlutdeildarlánin hafa reynst vel. Úrræðið, sem komið var á þegar Framsókn fór með húsnæðismálin, hefur hjálpað mörgum fyrstu kaupendum að eignast eigið húsnæði og stuðlað að auknum stöðugleika á fasteignamarkaði. En án nægilegs fjármagns er verið að grafa undan árangrinum og frysta fólk úti af húsnæðismarkaðnum. Á sama tíma er algjört lykilatriði að framboð húsnæðis aukist jafnt og þétt. Byggingaraðilar eru líklegri til að fara af stað með verkefni ef fyrirsjáanleikinn er meiri. Þar bera stjórnvöld skýra ábyrgð. Þetta er ekki flókið: þegar eftirspurnin er margföld á við framboðið er vandinn ekki aðeins tæknilegur heldur snýst þetta um pólitískan vilja. Ríkisstjórnin getur breytt stöðunni en hefur kosið að gera það ekki. Ekkert plan. Engar lausnir. Og ungt fólk situr eftir. Höfundur er formaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin hefur ekkert raunhæft plan í húsnæðismálum og er að bregðast ungu fólki á þungum og erfiðum húsnæðismarkaði. Ströng lánþegaskilyrði gera mörgum ungum fyrstu kaupendum nánast ómögulegt að kaupa eigið húsnæði án stuðnings. Hlutdeildarlánakerfi Framsóknar er mikilvæg lausn við þessum vanda, en ríkisstjórnin þarf að standa sig betur. Þegar umsækjendur sem uppfylla öll skilyrði þurfa að treysta á handahófsútdrátt til að fá hlutdeildarlán er ljóst að kerfið er vanfjármagnað. Það er pólitísk ákvörðun sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ber ábyrgð á. Samkvæmt upplýsingum frá HMS voru um rúm 40% sem fékk úthlutað hlutdeildarláni. Af 58 fullgildum umsóknum fékk aðeins hluti umsækjenda úthlutun, eftir að dregið var á milli þeirra annan mánuðinn í röð. Slík staða á aldrei að koma upp í kerfi sem á að tryggja ungu fólki raunhæft og jafnt aðgengi að húsnæði. Afleiðingarnar eru augljósar. Stór hópur ungs fólks býr enn í foreldrahúsum eða situr fastur á leigumarkaði, þar sem engin eignamyndun á sér stað. Þetta gerist þrátt fyrir að greiðslubyrði margra myndi oft lækka við það að komast í eigið húsnæði. Á sama tíma eykst óvissa hjá þeim sem hafa þegar tryggt sér kauptilboð með tilheyrandi áhyggjum og óþægindum. Skortur á fyrirsjáanleika er algjör og hann er alvarlegur.Hlutdeildarlánin hafa reynst vel. Úrræðið, sem komið var á þegar Framsókn fór með húsnæðismálin, hefur hjálpað mörgum fyrstu kaupendum að eignast eigið húsnæði og stuðlað að auknum stöðugleika á fasteignamarkaði. En án nægilegs fjármagns er verið að grafa undan árangrinum og frysta fólk úti af húsnæðismarkaðnum. Á sama tíma er algjört lykilatriði að framboð húsnæðis aukist jafnt og þétt. Byggingaraðilar eru líklegri til að fara af stað með verkefni ef fyrirsjáanleikinn er meiri. Þar bera stjórnvöld skýra ábyrgð. Þetta er ekki flókið: þegar eftirspurnin er margföld á við framboðið er vandinn ekki aðeins tæknilegur heldur snýst þetta um pólitískan vilja. Ríkisstjórnin getur breytt stöðunni en hefur kosið að gera það ekki. Ekkert plan. Engar lausnir. Og ungt fólk situr eftir. Höfundur er formaður Framsóknar.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar