Gerum betur í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar 6. maí 2026 16:03 Það er gott að búa í Mosfellsbæ. Við erum umlukin einstakri náttúru og er aðgengi að henni með því besta sem gerist. Tækifærin til íþrótta- og tómstundaiðkunar í bænum eru mýmörg og fjölbreytt, hvort sem litið er til Aftureldingar, golfklúbbsins, hestamannafélagsins eða annarra félaga. Menningarlífið iðar og setja kórar og leikfélagið svip sinn á bæjarbraginn allan. Hér starfar öflugt og faglegt starfsfólk í leik- og grunnskólum sem heldur vel utan um börnin okkar, þá hafa bæði Tónlistarskóli Mosfellsbæjar og skólahljómsveitin alið af sér listafólk sem hefur náð langt og það á heimsvísu. Svona mætti áfram lengi telja. Saman höfum við í gegnum árin byggt upp þennan góða grunn sem samfélagið okkar hvílir á. Síðustu fjögur ár hafa aftur á móti markað ákveðin tímamót hvað þetta varðar. Hærri skattar en þjónusta ekki batnað Eftir að nýr meirihluti Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar tók við stjórnartaumunum hefur eitt einkennt stefnuna umfram annað: hærri álögur á íbúa. Í dag er Mosfellsbær eina sveitarfélagið í Suðvesturkjördæmi sem nýtir útsvarsprósentu sína til fulls. Það þýðir einfaldlega að íbúar Mosfellsbæjar greiða hæstu tekjuskattana í kjördæminu – á pari við Reykjavík. Á sama tíma hafa fasteignagjöld hækkað meira en í nágrannasveitarfélögum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur í brúnni. Íbúar hljóta hreinlega að spyrja sig hver ávinningurinn af þessu sé? Eitt er víst, þjónustan hefur ekki tekið framförum í takti við hækkandi álögur, bærinn tekur því meira til sín en áður en það skilar sér ekki í betri daglegri þjónustu við íbúa. „Mosó-módelið“ Eitt skýrasta dæmið eru þær breytingar sem gerðar hafa verið á leikskólaþjónustu bæjarins að undirlagi Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar. Meirihlutinn hefur statt og stöðugt haldið því fram að hið svokallað „Mosó-módel“ í leikskólamálum njóti almenns stuðnings meðal foreldra. Það rímar hins vegar illa við upplifun foreldranna sjálfra. Föstudagar eru nú skráningardagar sem þýðir að foreldrar þurfa að sækja sérstaklega um vistun eftir klukkan 14 fyrir börnin sín þá daga sé þess þörf og það með vikufyrirvara og í hverri einustu viku. Ekki er hægt að óska eftir varanlegri lausn heldur þarf að endurtaka umsóknarferlið aftur og aftur. Allt er þetta kynnt sem viðbragð við umsaminni styttingu vinnuvikunnar. Vissulega þurfa sveitarfélögin að finna lausnir á þeim áskorunum sem henni fylgja en með þessu móti er vandinn ekki leystur heldur færður yfir á foreldra. Fyrir fjölskyldur, sem sækja þurfa vinnu og hafa takmarkaðan sveigjanleika, skapar þetta fyrirkomulag óvissu og aukið álag. Eftir slíku var engin eftirspurn. Að reka leikskóla er ekki einfalt. Það getur reynst krefjandi að tryggja mönnun og tíð veikindi starfsfólks og mikið álag í starfi áskoranir sem við þurfum að takast á við í sameiningu. Raunverulegar lausnir fela þannig í sér jafnvægi milli þess að mæta bæði þörfum starfsfólks og fjölskyldna, aðeins þannig tryggjum við góða og áreiðanlega þjónustu við bæjarbúa sem einfaldar lífið en flækir það ekki að óþörfu. Reynslan sýnir okkur að það er hægt að gera betur. Mosfellingar eiga betra skilið Í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí fá íbúar Mosfellsbæjar tækifæri til að taka afstöðu: Viljum við halda áfram á sömu braut þar sem fyrsta viðbragð við hvers kyns áskorunum er að hækka skatta og draga úr þjónustu? Eða velja leið sem byggir á ábyrgri fjármálastjórn, hagkvæmni og sterkri þjónustu án þess að sífellt dýpra sé seilst í vasa íbúanna? Sjálfstæðisflokkurinn býður upp á þá leið. Kynntu þér 50 fyrirheit flokksins á www.50fyrirheit.is og taktu upplýsta ákvörðun. Setjum X við D – fyrir Mosfellsbæ og gerum gott samfélag enn betra. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Mosfellsbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Skoðun Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar