Má mæta Íslandi en myndi byrja HM í banni Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 13:01 Gianluca Prestianni hefur aðeins leikið einn A-landsleik enda aðeins tvítugur að aldri. Getty/Hector Vivas FIFA hefur samþykkt beiðni UEFA um að leikbannið sem Gianluca Prestianni hlaut, fyrir hommafóbíu í leik með Benfica gegn Real Madrid, gildi einnig á mótum á vegum FIFA.
Þetta þýðir að Prestianni gæti misst af fyrstu tveimur leikjum Argentínu á HM í Ameríku í sumar en það er The Athletic sem greinir frá þessu. Hann má hins vegar spila við Ísland fyrir mótið. Hinn tvítugi Prestianni er hins vegar ekki beint lykilmaður í liði heimsmeistaranna því hann á bara einn A-landsleik að baki. Hann var þó í síðasta landsliðshópi sem valinn var í vináttulandsleikina í mars, gegn Máritaníu og Sambíu. Verði hann valinn í argentínska HM-hópinn má hann ekki spila gegn Alsír og Austurríki 16. og 22. júní. Hann má hins vegar klára tímabilið sitt með Benfica og spila vináttulandsleiki með Argentínu gegn Hondúras 6. júní og gegn Íslandi 9. júní, þar sem þessir leikir eru ekki í mótum á vegum UEFA eða FIFA. Leikur Argentínu við Ísland verður síðasti leikur heimsmeistaranna áður en HM hefst og fer hann fram á Jordan Hare leikvanginum í Auburn í Alabama. Á enn tvo leiki eftir í banni UEFA dæmdi Prestianni í sex leikja bann fyrir hommafóbíu eftir orð sem hann beindi að Vinicius Junior í leik gegn Real í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Hann var sakaður um kynþáttaníð, að hafa kallað Vinicius apa, en á endanum dæmdur fyrir hommafóbíu. Prestianni hélt hönd yfir vörum sínum þegar hann lét orðin falla og því var ekki hægt að beita varalestri til að sjá hvað hann sagði. Þetta hefur leitt til nýrrar reglu sem veldur því að hylji leikmenn munn sinn þegar þeir tala við mótherja eigi þeir á hættu að fá rautt spjald. Þrír leikjanna voru skilorðsbundnir en Prestianni tók strax út fyrsta leikinn í banninu, áður en dómur var fallinn, þegar honum var meinað að spila seinni leikinn í einvíginu við Real. Hann á hins vegar eftir að sitja af sér tvo leiki. Þar sem bannið gildir bara í mótum á vegum UEFA, og nú FIFA, hefur Prestianni þurft að bíða eftir að geta klárað að afplána dóminn.
HM 2026 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Sport Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Fleiri fréttir Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí Sjá meira