Besta sumarvinna sögunnar? Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 08:30 Stuðningsmenn bíða í ofvæni eftir því að HM hefjist í sumar og einn fótboltaáhugamaður mun fá vel greitt fyrir að horfa á alla leiki mótsins. Getty Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox Sports hefur nú auglýst starf sem felst einfaldlega í því að horfa á alla leikina á HM í fótbolta og fá fyrir það 6,1 milljón króna í laun.
Fox Sports er með réttinn til að sýna frá HM í Bandaríkjunum og hefur nú auglýst starf sem ætti að vekja áhuga fjölmargra fótboltaáhugamanna. Starfstitilinn mætti þýða sem „yfiráhorfandi HM“. We've got your dream job--announcing @foxone #ChiefWorldCupWatcher hired through @indeed. Get paid $50,000 to watch every minute of all 104 matches. Go to https://t.co/TxS2OmNzum pic.twitter.com/NqGkRXFeg2— FOX Sports (@FOXSports) May 5, 2026 Sá sem hlýtur starfið „þarf“ að horfa á alla 104 leiki heimsmeistaramótsins, frá 11. júní til 19. júlí, í sérstökum glerkassa sem komið verður fyrir á miðju Times Square í New York. Glerkassinn sem viðkomandi verður í minnir óneitanlega á þegar Almar Steinn Atlason, þá fyrsta árs nemi í Listaháskólanum, framdi listgjörning með því að dvelja í viku í glerkassa fyrir allra augum árið 2015. Hann gæti því búið yfir reynslu sem forráðamenn Fox horfa til þegar þeir ráða í starfið. Viðkomandi þarf vissulega að horfa á hverja einustu mínútu mótsins, fyrir framan fullt af fólki, en fær fyrir það 50.000 Bandaríkjadali eða um 6,1 milljón króna, fyrir aðeins 39 daga vinnu. „Einn umsækjandi mun fá besta starf ævinnar og upplifa og fagna hverri sögu, hverri þjóð og hverju spennandi augnabliki sem einkennir þessa fallegu íþrótt,“ segir í tilkynningu Fox Sports. Tilkynnt verður um ráðninguna þann 6. júní, fimm dögum fyrir fyrsta leik á HM, í beinni útsendingu Fox frá hafnaboltaleik Boston Red Sox og New York Yankees.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Sjá meira