Handbolti

„Get al­veg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sigursteinn Arndal gefur sínum mönnum fyrirmæli af hliðarlínunni.
Sigursteinn Arndal gefur sínum mönnum fyrirmæli af hliðarlínunni. Vísir/Anton Brink

Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, treysti sér ekki í að reyna að útskýra það sem átti sér stað í leik liðsins gegn Val í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

FH-ingar unnu vægast sagt dramatískan sigur, 37-36, eftir tvíframlengdan leik þar sem úrslitin réðust þegar Daníel Freyr Andrésson varði vítakast á lokasekúndunum eftir að hann hafði sjálfur verið dæmdur brotlegur.

„Ég held að ég geti ekkert útskýrt það frekar en einhver annar,“ sagði kampakátur Sigursteinn í leikslok.

„En þetta eru náttúrulega bara tvö frábær lið og þetta var ótrúlegur leikur. Bara ótrúlegur karakter og dugnaður í mínum mönnum.“

FH-ingar sýndu einmitt mikinn karakter í kvöld. Þó ekki á þann hátt að liðið hafi snúið við blaðinu eftir að hafa lent mörgum mörkum undir, heldur á þann hátt að klára leikinn eftir að hafa of oft misst niður forskotið.

„Já, ég er sammála því. Mér fannst við vera mjög góðir lengst af, en svo bara komum við okkur í erfiða stöðu. Við erum að mæta frábæru Valsliði og það má aldrei gefa eftir. Það koma nokkur augnablik sem við missum þá fram úr okkur, en vá hvað ég er stoltur af bæði FH-liðinu og fólkinu í stúkunni sem hélt alltaf áfram með okkur.“

Þá ætlaði hann ekki að leggja dóm á það þegar Daníel Freyr var dæmdur brotlegur undir lok leiks og Valsmenn fengu vítakast til að jafna leikinn.

„Ég ætla ekki að reyna að útskýra regluverkið í kringum þetta. En dómararnir fara í skjáinn og þá hljóta þeir að sjá eitthvað sem þeir telja sig geta staðið við og við treystum því.“

Sjálfur hafði Daníel ekki viljað meina að hann hafi verið að reyna að stela fyrirsögnum með því að gefa víti og verja það síðan undir lok leiksins. Sigursteinn hafði mögulega aðra sýn á það.

„Ég get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert,“ sagði Sigursteinn léttur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×