Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 5. maí 2026 09:18 Verkalýðsfélög eiga sér ríka sögu hér á landi og hafa verið öflugt hreyfiafl til framfara í íslensku samfélagi. Á 20. öld náðist mikill árangur í baráttu fyrir réttindum vinnandi fólks, svo sem atvinnuleysistryggingum, orlofsrétti, veikindarétti, lífeyrisréttindum, fæðingarorlofi og öðrum mikilvægum réttindum. Þeim árangri má verkalýðshreyfingin vera stolt af. En í dag er öldin önnur. Réttindi launafólks hvíla á styrkum lagastoðum og öflugt opinbert velferðarkerfi hefur verið byggt upp. Upphaflegt markmið verkalýðsfélaganna, að berjast fyrir grundvallarréttindum launafólks, hefur þannig að miklu leyti náðst. Í kjölfarið hefur hlutverk félaganna þróast frá hefðbundinni réttindabaráttu yfir í víðtækari hagsmunagæslu, umfangsmikinn rekstur og jafnvel eftirlitshlutverk – allt með stuðningi frá hinu opinbera. Opinber stuðningur við lokað úrræði Á undanförnum árum hafa verkalýðsfélögin orðið sífellt umsvifameiri á fasteignamarkaði í gegnum uppbyggingu svonefnds óhagnaðardrifins húsnæðis. Húsnæðisfélög á borð við Bjarg, sem er á vegum ASÍ og BSRB, hafa vaxið verulega í krafti ríkulegs stuðnings hins opinbera. Stuðningurinn er meðal annars í formi stofnframlaga frá ríki og sveitarfélögum, afsláttar af lóðaverði og hagstæðra lána með ríkisábyrgð. Með þessu fyrirkomulagi er almannafé ráðstafað til uppbyggingar húsnæðisúrræðis sem verkalýðsfélög stýra. Aðgangur að úrræðinu er síðan einungis í boði fyrir þá sem eru meðlimir í félögunum. Opinbert fé til að fylgjast með öðrum Annað dæmi er hálfopinbert hlutverk verkalýðshreyfingarinnar í eftirliti með verðlagi. Á dögunum var samþykkt frumvarp um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Með frumvarpinu var Verðlagseftirliti ASÍ veittur sérstakur styrkur til að fylgjast með verðlagi. Með þessu er hagsmunaaðila á vinnumarkaði veitt opinbert fjármagn til að sinna eftirliti með verðlagningu annarra einkaaðila. Það er óeðlileg blanda hlutverka. Eftirlit með því að lögum og reglum á markaði sé fylgt á að vera í höndum opinberra stofnana. Eftirlit með verðlagi ætti síðan að vera í höndum neytenda sjálfra, án aðkomu hins opinbera. Félagafrelsi þarf að gilda í reynd Að forminu til er félagafrelsi tryggt í íslenskri löggjöf. Í reynd er veruleikinn flóknari. Forgangsréttarákvæði í kjarasamningum geta veitt félagsbundnum launþegum forgang við ráðningar og haft áhrif þegar kemur að uppsögnum. Slík ákvæði skapa þrýsting á launafólk til að standa innan tiltekinna félaga, jafnvel þótt félagafrelsi eigi að fela í sér bæði rétt til að vera í félagi og rétt til að standa utan þess. Í nágrannaríkjum okkar hefur rétturinn til að standa utan stéttarfélaga fengið aukið vægi. Þar er ekki talið eðlilegt að launafólk þurfi að vera í tilteknu félagi til að njóta fullra réttinda á vinnumarkaði. Í Danmörku leiddu dómar Mannréttindadómstóls Evrópu til lagabreytinga þar sem bannað var að gera aðild að tilteknu stéttarfélagi að skilyrði fyrir starfi. Ísland ætti að draga lærdóm af þeirri þróun. Félagafrelsi á að vera raunverulegt. Launafólk á að geta valið hvort það gengur í stéttarfélag án þess að missa aðgang úrræðum sem eru studd af hinu opinbera, án þess að njóta lakari stöðu á vinnumarkaði og án þess að kerfið sjálft ýti því með beinum eða óbeinum hætti í tiltekna félagsaðild. Falinn kostnaður félagsaðildar Loks er kostnaður við aðild að stéttarfélögum launafólki að nokkru leyti hulinn. Félagsgjöld eru dregin sjálfkrafa af launum og launagreiðendur sjá um innheimtuna fyrir félögin samkvæmt lögum. Mótframlög vinnuveitenda eru sömuleiðis almennt ekki sýnileg launafólki með sama hætti og beinar launagreiðslur, þótt þau séu hluti af heildarkostnaði við starfskjör. Þetta skiptir máli vegna þess að aðild að stéttarfélögum er óvenju mikil hér á landi. Um 90% launafólks á Íslandi er aðili að stéttarfélagi, sem er mun hærra hlutfall en á öðrum Norðurlöndum. Þegar svo há félagsaðild helst í hendur við úrræði sem eru studd af hinu opinbera, forgangsréttarákvæði og sjálfvirka innheimtu félagsgjalda er rétt að spyrja hvort aðildin sé frjáls í reynd. Verkalýðsfélög standi á eigin fótum Verkalýðsfélögin hafa gegnt mikilvægu hlutverki í framfarasögu íslensks samfélags. En sú saga réttlætir ekki sjálfkrafa opinberan stuðning, lagalega sérstöðu eða sérstakt skjól hjá hinu opinbera. Verkalýðsfélögum er frjálst að sinna hverjum þeim verkefnum sem félagsmenn þeirra kjósa að fela þeim. Annað gildir þegar slík verkefni eru unnin í faðmi hins opinbera — með almannafé, lögbundinni sérstöðu eða eftirlitshlutverkum sem eðlilegra væri að opinberar stofnanir sinntu. Skýra þarf betur mörkin á milli verkalýðsfélaga og hins opinbera. Opinber úrræði eiga ekki að vera bundin við aðild að stéttarfélögum. Eftirlitshlutverk á markaði eiga að vera í höndum opinberra stofnana. Réttur þeirra sem kjósa að standa utan þeirra á að vera óskertur. Og innheimta félagsgjalda á að vera á ábyrgð félaganna sjálfra. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Brynjúlfur Björnsson Stéttarfélög Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar