Annað liðið á tveimur dögum sem kemur til baka eftir að hafa lent 3-1 undir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2026 10:47 Cade Cunningham fór fyrir Detroit Pistons í oddaleiknum gegn Orlando Magic. getty/Nic Antaya Detroit Pistons vann sitt fyrsta einvígi í úrslitakeppni NBA í átján ár þegar liðið sigraði Orlando Magic, 116-94, í oddaleik. Detroit lenti 3-1 undir í einvíginu en kom til baka og tryggði sér sæti í undanúrslitum Austurdeildarinnar.
Aðeins fimmtán lið í sögu NBA hafa komið til baka eftir að hafa lent 3-1 undir í einvígi og komist áfram. Það hefur nú gerst tvisvar sinnum á tveimur dögum því á laugardaginn sigraði Philadelphia 76ers Boston Celtics í oddaleik, 100-109, og komst áfram þrátt fyrir að hafa lent 3-1 undir í rimmu liðanna. Cade Cunningham skoraði 32 stig fyrir Detroit gegn Orlando og gaf tólf stoðsendingar. Tobias Harris skoraði þrjátíu stig og tók níu fráköst. Paolo Banchero var með 38 stig, níu fráköst og sex stoðsendingar hjá Orlando. Detroit's Motor(CADE) came through in Game 7!🏎️ 32 PTS 🏎️ 12 AST🏎️ 2 BLK🏎️ 4-6 3PM🏎️ 10-18 FGMPistons become the 15th team in NBA history to come back from down 3-1 deficit in a postseason series!They are BACK in the East Semis for the first time since 2008 🔥 pic.twitter.com/ixxYqyluDF— NBA (@NBA) May 3, 2026 Detroit er því komið í undanúrslit Austurdeildarinnar í fyrsta sinn síðan 2008. Eftir erfið ár hefur landið risið hjá liðinu og á síðasta tímabili komst það í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2019. Í vetur vann liðið svo sextíu leiki og endaði í efsta sæti Austurdeildarinnar. Í undanúrslitunum mætir Detroit Cleveland Cavaliers sem vann Toronto Raptors í oddaleik, 114-102. Allir sjö leikirnir í einvíginu unnust á heimavelli. Jarrett Allen skoraði 22 stig fyrir Cleveland og tók nítján fráköst. Donovan Mitchell skoraði einnig 22 stig. Scottie Barnes var með 24 stig og níu fráköst hjá Toronto og RJ Barrett skilaði 23 stigum. Jarrett Allen DOMINATES, @cavs win Game 7!⚔️ 22 PTS⚔️ 19 REB⚔️ 3 BLK⚔️ 2 STLHe is the first player since 2020 (Nikola Jokić) to total 20+ PTS, 15+ REB and 3+ BLK in a Game 7 😮 pic.twitter.com/ArwENeUe6F— NBA (@NBA) May 4, 2026
NBA Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Besti árangur Íslendings á EM í 24 ár Sport Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Fótbolti Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira