Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. maí 2026 23:50 Bella fór á Dýraspítlann í Víðidal og mun ná sér að fullu. Tvö hundruð sjálfboðaliðar komu að leitinni að Bellu sem stóð í sex sólarhringa. Bella, hundur af tegundinni Shetland Sheepdog, fannst loksins föst í stórri grjóthrúgu. „
Hún var stór og mikil og mjög krefjandi,“ segir Freyja Kjartansdóttir, sem er í teymi Dýrfinnu og leitaði í alla sex sólarhringana. „Eigendur Bellu voru með hana í göngu við hraunið til móts við álverið á sumardaginn fyrsta. Þau mæta fólki með tvo stóra hunda og annar hundurinn óð í Bellu og beit hana. Hún hljóp í burtu og hvarf algjörlega. Þau leituðu í eina og hálfa klukkustund áður en þau hringdu í okkur.“ Freyja Kjartansdóttir er hér til vinstri en hún stóð vaktina alla sex sólarhringana.vísir/sigurjón Freyja segir teymið hjá Dýrfinnu hafa kallað út alla sjálfboðaliða en alls komu um tvö hundruð manns að leitinni. Hálftíma eftir að símtalið barst voru drónar komnir á loft til að leita í hrauninu. Alls voru átta drónar notaðir, þrír hitadrónar, nætursjónaukar, hitasjónaukar og fjórhjól. „Hún fannst á endanum á svæði sem var samt búið að dróna yfir. Þetta var í iðnaðarhverfinu á svæði þar sem var mikið af stórum vinnuvélum og grjóthleðslum svo sjálfboðaliðarnir vildu ekki vera þar á vappi,“ segir Freyja. Eftir sex sólarhringa leit ákvað maður sem átti iðnaðarbíl á svæðinu að taka rúnt eftir að eiginkona hans hvatti hann til þess. Bella var föst í stórri grjóthrúgu. „Hann kíkir í bíltúr og er að keyra hægt meðfram malarvegi og heyrir væl í henni. Hann kemur ekki auga á hana en sleppir hundinum sínum lausum og hann hljóp beint upp á klettagarðinn.“ Bella, sem var ennþá með tauminn fastan, hafði flækst í grjótinu og var því föst í hrúgu af stórgrýti. Það voru heldur betur fagnaðarfundir og féllu tár þegar hún fannst loks. Freyja segist afar þakklát öllum þeim sem komu að leitinni. Til að mynda hafði eiginmaður sjálfboðaliða boðið þeim að dvelja inni í kaffiskúr nálægt leitarsvæðinu auk þess sem tvær björgunarsveitir nýttu tækifærið til að æfa notkun á hitadróna. „Þegar hundur er í neyð er ótrúlegt samfélag sem tekur sig saman.“
Gæludýr Hafnarfjörður Hundar Dýr Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira