Körfubolti

Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Halldór Garðar Hermannsson lýsir sigurkörfu sinni fyrir Þór Þ. gegn Tindastóli á Sauðárkróki vorið 2019.
Halldór Garðar Hermannsson lýsir sigurkörfu sinni fyrir Þór Þ. gegn Tindastóli á Sauðárkróki vorið 2019. sýn sport

Eftirminnileg atburðarás undir lok oddaleiks Tindastóls og Þórs Þ. í átta liða úrslitum efstu deildar karla í körfubolta 2019 er til umfjöllunar í ellefta þætti Augnablikanna sem nefnist „Stuldurinn í síkinu.“

Tindastóll vann fyrstu tvo leikina í einvíginu gegn Þór fyrir sjö árum og allt benti til þess að Stólarnir kæmust í undanúrslitin. Þórsarar knúðu hins vegar fram oddaleik með því að vinna leiki þrjú og fjögur.

Í oddaleiknum blés ekki byrlega fyrir Þór. Tindastóll náði mest 23 stiga forskoti og þegar rétt rúmar fjórar mínútur voru til leiksloka voru Stólarnir fjórtán stigum yfir, 90-76. En þá snerist leikurinn algjörlega á hvolf.

Þórsarar minnkuðu muninn á ógnarhraða og eftir þriggja stiga körfu Nikolas Tomsick munaði aðeins einu stigi á liðunum, 93-92. Ragnar Örn Bragason fékk svo tækifæri til að koma gestunum yfir en án árangurs og heimamenn fengu boltann þegar níu sekúndur voru eftir. 

Í leikhléi sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Þórs, við sína menn að þeir þyrftu að stela boltanum. Og það gerðist. Kinu Rochford náði boltanum sem endaði hjá Halldóri Garðari Hermannssyni sem skoraði og kom Þór yfir, 93-94. Hann fékk vítaskot að auki en brenndi af því og tíminn rann út.

„Við stelum honum og þetta gerist svo hratt. Frá því að við stelum honum, ég veit ekki, hvað eru þetta, 2-3 sekúndur? Þú ert bara áhorfandi á hliðarlínu sem hefur enga stjórn á neinu og vonar að eitthvað sé að fara að gerast,“ sagði Baldur.

Klippa: Augnablikin - Stuldurinn í Síkinu

Halldór Garðar man vel eftir sigurkörfunni í Síkinu.

„Um leið og ég sé Nick slá hann hleyp ég eins hratt fram og ég get. Svo fær Jaka [Brodnik] boltann á miðjunni og ég er aðeins fyrir framan hann,“ sagði Halldór Garðar. 

„Hann sendir á mig og ég tek mér smá tíma, horfi upp og hugsa hvort ég ætti að skjóta eða fara alla leið og ég sé að ég hef tíma til að fara fara alla leið. Ég tek smá hik og Brynjar [Þór Björnsson] fipast aðeins. Svo keyri ég bara á körfuna og legg hann ofan í.“

Þór fór í undanúrslit þar sem liðið tapaði fyrir Íslandsmeisturum KR, 3-1.

Brot úr „Stuldinum í síkinu“, ellefta þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 19:05 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.


Tengdar fréttir

Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga

Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum.

Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður

Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×