Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar 2. maí 2026 12:03 „Ræsum vélarnar“ sögðu ráðherrar ríkisstjórnarinnar með stolti á kynningarfundi um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 rétt fyrir síðustu jól. Yfirlýsingar um hitt og þetta sem loksins kæmist í framkvæmd voru látnar fljúga, uppbygging væri fram undan og að nú skyldu hendur standa fram úr ermum í samgöngumálum, byrjað yrði að bora og vegir loksins lagaðir. Síðan eru liðnir tæpir fimm mánuðir. Fjármálaráðherra hefur í millitíðinni lagt fram fjármálaáætlun 2027-2031 hvar dregið er úr fjárframlögum til samgöngu- og fjarskiptamála á áætlunartímabilinu. Á sama tíma hefur almenningi verið talin trú um að tekjur af nýjum sköttum á atvinnulíf og auknum álögum á heimilin eigi að renna beinustu leið til innviðauppbyggingar. Hér fer vart saman hljóð og mynd. Veiðigjöld voru hækkuð umtalsvert síðasta sumar og því lofað að tekjurnar skyldu skila sér til frekari uppbyggingar samgönguinnviða með áherslu á landsbyggðina. Kílómetragjaldið og hækkun vörugjalda á ökutæki áttu sömuleiðis að tryggja aukið framkvæmdafé. Nú er svo jafnvel stefnt að því að bæta veggjöldum og flýtigjöldum við í púkkið. Hið svokallað innviðafélag á svo að brúa það sem enn vantar upp á. Að stofna félag utan um stórar innviðaframkvæmdir getur vissulega verið skynsamleg ráðstöfun sé rétt að útfærslunni staðið. Fjármálaráð hefur hins vegar bent á að með boðuðu fyrirkomulagi sé verið að færa áhættu til, skapa freistnivanda og draga úr gagnsæi. Ábyrgðin er eftir sem áður ríkisins sem tekur reikninginn ef illa fer. Ef saga Íbúðalánasjóðs kennir okkur eitthvað þá er það ekki síst það að bókhaldsleg flokkun skuldabaggans skiptir ekki höfuð máli heldur það hver ber byrðarnar. Átti ekki að láta verkin tala? Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð og Samtök ferðaþjónustunnar hafa bent á hið augljóst ósamræmi sem teiknast hefur upp af hendi ríkisstjórnarinnar: gjöldin hækka stöðugt en fjárfesting í nafni innviða hefur ekki aukist. Það er nefnilega ekki nóg að segjast ætla að „ræsa vélarnar“ og vonast svo bara til þess að orðin ein dugi til að sefa mannskapinn, alla þá sem ekki komast til og frá vinnu, til að sækja nauðsynlega þjónustu, fá ekki þær vörur sem nauðsyn er á. Ástand samgöngumála víða um land og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar segir sína sögu. Engir frasar geta koma í stað raunverulegra efnda í þeim efnum. Aðeins skýr forgangsröðun og raunveruleg fjármögnun framkvæmda dugar til. Vélar sem ganga á orðinu einu drífa ekki langt, í besta falli aðeins beint út í skurð. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Bryndís Haraldsdóttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgönguáætlun Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar