Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar 30. apríl 2026 12:46 Vestmanneyingar eru seinþreyttir til vandræða, það þykir ekki gott að kvarta. Nú er hins vegar komin upp staða varðandi samgöngur í Eyjum sem er óþolandi. Þetta er eitthvað í ætt við að svelta mjólkurkúna, hugbúnaðarfyrirtæki að borga ekki símareikninginn eða útgerðarmann sem kaupir ekki olíu á skipin. Vestmannaeyjar eru nefnilega einn af máttarstólpum Íslands í verðmætasköpun og er yfirstandandi gríðarlegt tjón af völdum sinnuleysis hjá stjórnvöldum í samgöngumálum. Loforð og raunveruleiki Verðmætasköpunin í Eyjum er víða: sjávarútvegur, fiskeldi og ferðaþjónusta eru helstu greinarnar. Hvernig eiga þessar greinar að lifa við það að nánast engar samgöngur séu við Eyjuna? Þegar Landeyjahöfn var byggð var lagt upp með að höfnin yrði opin í um 300 daga á ári með réttu skipi. Skipið kom miklu seinna og var þá reynt á gæði hafnarinnar. Nú er komin margra ára reynsla á höfnina og kemur í ljós að hún er ekki að skila nálægt því sem okkur var lofað og skipið eingöngu búið að sigla fáeina daga í Landeyjahöfn á þessu ári. Afleiðingar fyrir atvinnulíf og samfélag Vegagerðin sló á sínum tíma út af borðinu hugmyndir um göng og valdi stað fyrir höfnina sem hefur reynst erfitt að halda opinni vegna sandburðar. Nú síðasta dæmið í sorgarsögu samgangna í Eyjum undanfarin ár er að önnur af skrúfum Herjólfs er óvirk vegna þess að ekki voru til varahlutir sem fyrirsjáanlega hefðu átt að teljast nauðsynlegir. Þetta gerir að verkum að daglega verða fyrirtæki og fólk í Eyjum skert af þjónustu sem er nauðsynleg forsenda fyrir búsetu og starfsemi í Vestmannaeyjum. Íbúar í Vestmannaeyjum hafa kerfisbundið verið skertir af þjónustu á undanförnum árum þar sem góðar samgöngur hafa verið lagðar til grundvallar, t.d. í heilbrigðisþjónustu þar sem engin skurðstofa er rekin sem fyrirbyggir fæðingarþjónustu. Ungt fólk í barneignarhugleiðingum og fólk sem þarf að sækja læknishjálp hefur enga aðra kosti þessa dagana en að leggja á sig 4 tíma Herjólfsferð í hvora áttina til að sækja nauðsynlega þjónustu. Ef það á að rökstyðja minni þjónustu með samgöngum verða þær að vera í lagi. Töpuð tækifæri Það er erfitt að mæla töpuð tækifæri og skaða af völdum þjónustuleysis. Þegar útflytjendur mæta skorðum í flutningi og öflugt vinnandi fólk kemst ekki leiðar sinnar er skaði skeður. Það er ekki sæmandi Íslendingum að skilja Eyjamenn eftir með þessum hætti og tapið er ekki bara í Eyjum. Töpuðu tækifærin myndu greiða margfalt til baka þann aukakostnað sem ríkið þyrfti að bera af því að standa vel að hlutum í samgöngum við Eyjar. Hver er lausnin? Eðlilegasta lausnin er að Vegagerðin efni loforð sitt um 300 daga á ári með umbótum á Landeyjahöfn og sterkara utanumhaldi um rekstur skipsins, t.d. varahlutaeign. Mjólkurkúin skilar engu nema henni sé sinnt. Höfundur er vélstjóri og rekstrarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar