Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Árni Sæberg skrifar 29. apríl 2026 10:28 Frá vinstri: Einar Þór, Óskar Fannar og Pétur Snær. Brunnur Ventures Brunnur Ventures eflir fjárfestingateymi sitt með þremur nýjum ráðningum í kjölfar stofnunar Brunns III, nýs 7,1 milljarða króna vísisjóðs. Brunnur rekur jafnframt sjóðina Brunn I og Brunn II og stýrir þannig þremur vísisjóðum sem nema samtals yfir 20 milljörðum króna.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að sjóðir Brunns fjárfesti í sprota- og vaxtarfyrirtækjum á hugmynda-, klak- og vísistigi með það að markmiði að styðja öflug teymi við uppbyggingu alþjóðlegra fyrirtækja frá Íslandi. Meðal fjárfestinga sjóðanna séu félög á borð við Oculis, DTE, Nanitor, Laki Power, AviLabs, Axelyf, Taktikal og Hopp. Óskar Fannar Vilmundarson hafi nú verið ráðinn fjárfestingastjóri, auk þess sem Einar Þór Gústafsson hafi verið ráðinn fjárfestingastjóri og Pétur Snær Auðunsson greinandi. Óskar hafi hafið störf hjá Brunni sem greiningaraðili árið 2022 og hafi á þeim fjórum árum komið að sjö nýjum fjárfestingum úr Brunni vaxtarsjóði II og um tuttugu eftirfylgnisfjárfestinga í sjóðum Brunns I og II, auk þátttöku í stofnun Brunns III. Óskar hafi áður starfað hjá lækningavörufyrirtækinu Kerecis, fyrst sem aðstoðarmaður forstjóra og síðar sem verkefnastjóri í rannsóknum og þróun. Hann hafi víðtæka reynslu af hugverkum í nýsköpun og hafi meðal annars borið ábyrgð á alþjóðlegu einkaleyfasafni með yfir 50 skráðum einkaleyfum. Óskar sé með B.Sc. í vélaverkfræði frá Háskólanum í Osló, diplóma í viðskiptahagfræði frá Háskólanum í Tromsø og sé löggiltur verðbréfamiðlari. Einar Þór komi til Brunns frá Gangverki, þar sem hann hafi leitt vöruþróun í fjármála-, ferða- og heilsutækni fyrir stærri fyrirtæki á Íslandi og í Bandaríkjunum. Einar hafi rúmlega tuttugu ára reynslu af nýsköpun og alþjóðlegum vexti sprotafyrirtækja en hann hafi meðal annars gengt stöðu framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá Meniga, tæknistjóra Play og verið einn stofnanda Getlocal ásamt því að sitja í stjórn Símafélagsins og fleiri fyrirtækja. Einar hafi útskrifast frá SAE í New York og sé að leggja lokahönd á Executive MBA með áherslu á stafræna umbreytingu og nýsköpun. Pétur Snær Auðunsson hefur verið ráðinn greinandi hjá Brunni þar sem hann muni starfa við greiningu fjárfestingarkosta og þátttöku í verkefnum sjóðsins. Pétur sé með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, hafi lokið CFA Level II og sé með verðbréfamiðlararéttindi á Íslandi. Pétur búi yfir fimm ára reynslu á fjármálamarkaði, meðal annars úr áhættustýringu hjá Landsbankanum og Íslandsbanka, auk fyrirtækjaráðgjafar hjá Íslandsbanka. Síðast hafi hann gengt stöðu fjármálastjóra hjá verktakanum Verkeining ehf. „Við erum afar ánægð með að styrkja teymið okkar með þessum öflugu ráðningum. Óskar hefur sýnt framúrskarandi hæfni frá því hann kom til félagsins og því sérstaklega ánægjulegt að sjá hann taka næsta skref innan Brunns sem fjárfestingastjóri. Einar og Pétur koma jafnframt með dýrmæta reynslu og þekkingu sem mun nýtast vel í okkar vegferð,“ er haft eftir Árna Blöndal, meðstofnanda og fjárfestingastjóra hjá Brunni. Brunnur Ventures GP hafi verið stofnað af Árna Blöndal og Sigurði Arnljótssyni, sem hafi hvor um sig um 25 ára reynslu af nýsköpun, uppbyggingu fjölda vaxtarfyrirtækja og rekstri vísisjóða. Hjá Brunni Ventures starfa auk þeirra Kolbeinn Björnsson, fjárfestingastjóri.
Vistaskipti Fjármálafyrirtæki Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira