Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Sindri Sverrisson skrifar 28. apríl 2026 22:31 Þórskonur voru á meðal bestu liða 1. deildar í vetur en komust þó ekki upp í Bónus-deildina. Þór Akureyri Óvissa ríkir um framtíð körfuknattleiksdeildar Þórs á Akureyri, eftir krefjandi misseri. Starfandi formaður biðlar til körfuboltasamfélagsins á Akureyri að láta sig starf deildarinnar varða.
Þór tefldi fram liðum í 1. deildum karla og kvenna á leiktíðinni sem nú er að ljúka. Karlaliðið hafnaði í þriðja neðsta sæti og var nálægt því að falla en kvennaliðið varð í 2. sæti og fór í umspil um að komast í Bónus-deildina en féll þar úr leik gegn Fjölni. Tímabilið var einnig krefjandi utan vallar þar sem Þórsarar sáu sig knúna til að sleppa suðurför vegna veðurs, þegar kvennaliðið átti að mæta Selfossi á útivelli, en mættu ekki skilningi hjá KKÍ og urðu þar með að greiða sekt. Andri Gylfason, starfandi formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, segir í pistli á Facebook-síðu deildarinnar að nú séu ákveðin tímamót hjá félaginu. Fleiri hendur þurfi einfaldlega á dekk svo að hægt sé að halda áfram. Boðað hefur verið til fundar 21. maí þar sem ræða á um það hvernig eða hreinlega hvort að meistaraflokkum Þórs í körfubolta verði áfram haldið úti. Ekki tókst að mynda nýja stjórn meistaraflokks á aðalfundi síðastliðinn sunnudag. „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi? Ef vilji samfélagsins er til að halda úti öflugu meistaraflokksstarfi, þá krefst það sameiginlegs átaks okkar allra, ekki örfárra stjórnarmanna. Það felur í sér aukna þátttöku, skýrari ábyrgð og meiri samvinnu allra sem koma að starfinu – stjórn, leikmanna, foreldra, stuðningsmanna og annarra velunnara félagsins,“ skrifar Andri. Ljóst er að mikill sjónarsviptir yrði af Þórsurum ef allt færi á versta veg – félagi sem meðal annars getur státað sig af því að þar hófst til að mynda körfuboltaferill Tryggva Snæs Hlinasonar. „Þrátt fyrir þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir er mikilvægt að horfa einnig til þess styrks sem býr í félaginu. Saga þess, samfélagið í kringum það og sá fjöldi fólks sem hefur lagt sitt af mörkum í gegnum tíðina sýnir að grunnurinn er og getur verið sterkur – og að með samstilltu átaki er hægt að byggja upp enn öflugra starf,“ skrifar Andri.
Körfubolti Þór Akureyri Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Haraldur Franklín nálgast Opna breska Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira