Viðskipti innlent

Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna

Eiður Þór Árnason skrifar
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Einar

Flugfélagið Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er minna tap í krónum talið en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam 6,1 milljarði króna. Jákvæð gengisáhrif komu til lækkunar á tapi síðasta árs en Icelandair gerir upp í bandaríkjadölum. Ef horft er til þess þá eykst tap milli ára og fer úr 44,1 milljón dala í 45,3 milljónir dala í ár.

Þrátt fyrir þetta hafa tekjur félagsins aldrei verið hærri, að sögn stjórnenda. Jukust þær um 21% milli ára og voru 42,9 milljarðar króna á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Samhliða þessu voru hærri tekjur á hvern seldan sætiskílómetra og metsætanýting. Skilaði þetta tvennt 7% hækkun á einingatekjum Icelandair á tímabilinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Rekstrarafkoma batnaði og var EBIT tap að fjárhæð 6,6 milljarðar króna, sem er bæting um 1,1 milljarð króna á milli ára. EBIT hlutfalli batnaði sömuleiðis og fór úr því að vera neikvætt um 21,7% á síðasta ári í neikvætt um 15,4% á fyrsta ársfjórðungi nú.

Bogi Nils Bogason forstjóri segir að fjárhagsstaða félagsins sé sterk og lausafjárstaðan hækkað um 107 milljónir bandaríkjadali miðað við sama tíma í fyrra „sem gerir okkur vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru, ásamt áframhaldandi áherslu á kostnaðaraðhald og hagræðingu í rekstri.“ Þetta segir Bogi í tilkynningu til Kauphallar. 

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×