Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 28. apríl 2026 18:23 Mugison flutti lagið Minningu, sem hann og Björgvin Halldórsson fluttu saman á sínum tíma, í útför Björgvins. Vísir/Vilhelm Útför Björgvins Halldórssonar var gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Séra Guðni Már Harðarson jarðsöng og einvala lið tónlistarmanna, þar á meðal uppkomin börn Björgvins, flutti tónlist.
Björgvin fæddist 16. apríl 1951 í Hafnarfirði og lést 9. apríl síðastliðinn. Hann skilur eftir sig djúp spor í íslenskri menningarsögu, átti glæstan sólóferil og söng með hljómsveitum á borð við Ævintýri, Brimkló, Ðe lónlí blú bojs, HLH-flokknum og Sléttuúlfunum. Hallgrímskirkja var þétt setin meðan útförin, sem var opin almenningi, fór fram. Einvala lið tónlistarfólks söng við athöfnina: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Mugison, Páll Rósinkranz, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius auk barna Björgvins, þeirra Svölu og Krumma. Fóstbræður sungu einnig. Tónlistarstjóri og píanóleikari var Óskar Einarsson en Guðmundur Pétursson lék á gítar. Ari Eldjárn grínisti, Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður og Baldvin Jónsson, náfrændi Björgvins, fluttu ræður til minningar um Björgvin. Útförin var í beinu streymi á Vísi en upptöku af henni er að nálgast hér að ofan. Fréttastofa tók saman nokkur augnablik úr athöfninni, sem taldi tæplega tvær klukkustundir. Krummi og Svala Björgvinsbörn sungu lagið Vetrarsól í útför föður síns, Björgvins Halldórssonar. Með þeim söng Andrea Ingvarsdóttir. Lagið samdi Gunnar Þórðarson en textann samdi Björgvin. Þá söng tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst Haraldsson lagið Guð einn það veit sem Bó flutti á plötunni Ég syng fyrir þig. Grínistinn Ari Eldjárn minntist Björgvins hlýlega. Björgvin og Mugison gáfu út íslenska útgáfu lagsins Make You Feel My Love eftir Bob Dylan á sínum tíma. Mugison flutti lagið, Minningu, í útförinni. Páll Rósinkranz og Fóstbræður fluttu lagið Ég fann þig. Sigríður Thorlacius flutti lagið Gullvagninn (Sendu nú vagninn þinn að sækja mig) meðan kista Björgvins var borin út úr kirkjunni.
Andlát Björgvins Halldórssonar Tímamót Tónlist Hallgrímskirkja Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira