Viðskipti innlent

Sektað vegna aug­lýsinga fyrir „nikótín­púða­jóla­daga­tal“

Atli Ísleifsson skrifar
Pólóborg rekur meðal annars verslunina Polo við Bústaðaveg í Reykjavík.
Pólóborg rekur meðal annars verslunina Polo við Bústaðaveg í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur sektað Póloborg ehf., rekstraraðila Póló-verslana, um 600 þúsund krónur fyrir að hafa auglýst „nikótínpúðajóladagatal“ á samfélagsmiðlum sínum í kringum síðustu jól.

Stofnunin telur að með því hafi Pólóborg brotið gegn fyrri ákvörðun gagnvart fyrirtækinu frá árinu 2024 vegna auglýsinga og markaðssetningar á nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum.

Neytendastofa ákvað að sekta fyrirtækið vegna birtingar myndbands og mynda á Instagramsíðu verslunarinnar í nóvember og desember 2025 þar sem auglýst var svokallað „nikótínpúðajóladagatal“.

Í auglýsingunum komu fram fimm nikótínpúðavörumerki ásamt því að tekið hafi verið fram að um væri að ræða vörur sem væru bannaðar yngri en 18 ára og að vörurnar innihaldi nikótín.

Í svörum Pólóborgar til Neytendastofu kom fram að umræddar auglýsingar hefðu ekki verið í lagi, beðist var afsökunar á þeim og tekið fram að viðlíka auglýsingar myndu ekki birtast aftur.

Neytendastofa taldi tilefni til að sekta Pólóborg ehf. um 600 þúsund krónur fyrir brotið. Sektina skal greiða í ríkissjóð innan þriggja mánaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×