Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Aron Guðmundsson skrifar 26. apríl 2026 00:10 Davíð Tómas, körfuboltadómari, er á því að karfa Hilmars Smára Henningssonar sem réði úrslitum í Garðabænum í kvöld hafi verið lögleg Vísir/Samsett Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson segir Hilmar Smára Henningsson, leikmann Stjörnunnar, ekki hafa skrefað í aðdraganda flautukörfu sem tryggði Stjörnunni sigur í framlengdum leik gegn Tindastól í kvöld. „
Skref,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, um flautukörfu Hilmars Smára í viðtali við Andra Má Eggertsson á Sýn Sport eftir leik. „Hilmar skrefar í þessu skoti á stepbackinu.“ „Tvennt sem er mikilvægast í þessu“ Davíð Tómas sem býr að mikilli reynslu sem dómari hérlendis sem og í alþjóðaboltanum er þar ekki sammála. „Það er kannski tvennt sem er mikilvægast í þessu,“ segir Davíð Tómas og útskýrir hvers vegna flautukarfa Hilmars Smára er lögleg að hans mati. „Númer eitt. Þegar að Hilmar grípur boltann í gather steppinu sínu rétt fyrir utan þriggja stiga línuna þá lendir hann jafnfætis en ekki á öðrum fætinum fyrst,“ segir Davíð Tómas í samtali við Vísi. Hilmar Smári dripplar boltanum rétt fyrir utan þriggja stiga línuna eftir að hafa fengið boltann úr innkasti. Í þann mund sem hann feikar og virðist ætla að láta vaða í átt að körfunni fyrir utan þriggja stiga línuna er hann að taka svokallaða stepback hreyfingu. „Með því að lenda jafnfætis þar má Hilmar Smári samkvæmt reglum þar af leiðandi taka eitt, tvö skref og fara upp í skot eða lay-up. Þetta er lykillinn. Hann lendir jafnfætis og er því með núll skref. Ekki eitt ef hann hefði fyrst lent á öðrum hvorum fætinum. Hann má því stíga fram í vinstri, svo í hægri og taka skotið. Alveg eins og þegar menn eru að fara í layup. Þetta er það sama. Þegar maður lendir vinstri/hægri eða hægri/vinstri þá er fóturinn sem þú lendir á stoðfóturinn þinn. Svokallaður pivot-fótur. Í því tilfelli máttu bara stíga fram í annan fótinn og lyfta upp stoðfætinum til þess að skjóta. Ef þú ert ekki búinn ákvarða stoðfót máttu velja þér stoðfót. Sem þýðir að Hilmar Smári getur stígið fram í vinstri fót í fyrsta skrefi, tekur svo skref með hægri og leggur boltann upp í körfuna. Númer tvö sé að þegar að Hilmar Smári er kominn með boltann fyrir utan þriggja stiga línuna þá shöfflar hann fótunum pínulítið. „Þetta er mjög svipað og með Elvar Má og atvik í landsleik Íslands og Litháen. Ég heyrði í kollegum mínum erlendis þá og þeir eru á því að það hefði ekki átt að dæma skref á Elvar í því tilviki. FIBA er með verklag sem þeir kalla microscopic. Ef þú ert með örlitlar hreyfingar til að koma þér af stað þá á maður að líta fram hjá því. Þetta pínulitla shöffl þarna er svo pínulítið að það er ekki eitthvað sem maður á að vera sækja í eða vera leita að.“ Davíð Tómas fer nánar yfir allt í tengslum við flautukörfu Hilmars Smára Henningssonar í innslagi á morgun.
Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Enski boltinn Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Fótbolti Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti „VAR fór í kaffi“ til að hjálpa „heppnum“ Englendingum Fótbolti Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Sjá meira