Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar 25. apríl 2026 07:30 Í dag er alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um foreldraútilokun. Árið 2026 markar tuttugasta árið sem þessi dagur er tileinkaður málefninu víða um heim. Markmið hans er að vekja athygli á því þegar tengsl barns og foreldris rofna og þeirri ábyrgð sem samfélagið ber þegar slíkt gerist. Fyrr á árinu féll dómur í Landsrétti í máli nr. 628/2025 sem ætti að vekja alla til umhugsunar. Ekki vegna þess að hann sé einsdæmi, heldur vegna þess að hann endurspeglar mynstur sem hefur orðið æ algengara: að þegar tengsl barns og foreldris hafa rofnað yfir tíma, stígur kerfið inn og staðfestir þá stöðu sem þegar hefur myndast. Í stað þess að leiðrétta brostið samband er niðurstaðan reist á því sem „er orðið“. Þar verður spurningin óhjákvæmileg: er verið að dæma réttlátt, eða er verið að festa brot í sessi? Í dómi Landsréttar er rakin niðurstaða dómkvadds matsmanns og þar segir meðal annars: „Matsmaður kvaðst ekki hafa séð nein merki þess að stefnda hefði reynt að stuðla að samskiptum barnanna við [föður]... Börnunum þætti þau ekki geta verið í tengslum við föður ef þau væru í tengslum við móður og þau hefðu því í reynd ekki val um að umgangast föður sinn.“ Í íslenskum lögum er kveðið skýrt á um rétt barns til að njóta umgengni við báða foreldra og að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang. Þetta er ekki aðeins siðferðileg meginregla heldur lagaleg skylda sem stjórnvöldum og dómstólum ber að fylgja. Sama vernd er tryggð í alþjóðlegum sáttmálum, þar á meðal Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Að leggja ríka áherslu á „núverandi aðstæður“ og „vilja barnanna“ verður hins vegar varasamt þegar sú staða hefur þróast vegna langvarandi aðgerðaleysis. Þegar litið er til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu blasir við skýr og samræmd niðurstaða. Í málinu Pisică gegn Moldóvu (2019) komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld hefðu sjálf skapað þá stöðu sem síðar var notuð sem rök fyrir aðskilnaði barns og foreldris með því að grípa ekki tímanlega inn í. Í Strand Lobben o.fl. gegn Noregi (2019) var jafnframt undirstrikað að ríki verði að gera raunverulegar og markvissar tilraunir til að viðhalda fjölskyldutengslum áður en gripið er til varanlegra ráðstafana. Slík mál eru langt frá því að vera undantekning. Ítrekað hafa ríki verið talin brjóta gegn 8. gr. sáttmálans í málum sem varða rof tengsla foreldra og barna. Norska ríkið hefur ítrekað verið talið brotlegt við 8. gr. sáttmálans í slíkum málum og Þýskaland einnig. Niðurstaðan er skýr: aðgerðarleysið eitt og sér getur falið í sér mannréttindabrot. Dr. jur. Davíð Þór Björgvinsson prófessor við lagadeild HA, og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, hefur bent á að sífellt skipti meira máli hvort stjórnvöld hafi gripið til raunhæfra og tímanlegra aðgerða til að viðhalda tengslum barns og foreldris. Hann hefur jafnframt varað við því að ekki dugi að vísa til vilja barns ef sá vilji hefur mótast við aðstæður sem stjórnvöld hefðu átt að bregðast við, og að aðgerðaleysi geti í sjálfu sér falið í sér brot á 8. gr. sáttmálans. Þegar þessi sjónarmið eru borin saman við íslenska dómaframkvæmd verður niðurstaðan óþægileg. Í stað þess að meta hvort gripið hafi verið til nægjanlegra aðgerða virðist áherslan færast yfir á það sem orðið er. Þá er ekki lengur verið að meta hvað barni er fyrir bestu í lagalegum skilningi, heldur að staðfesta stöðu sem hefur orðið til vegna þess að ekki var gripið inn í fyrr. Þegar sú staða er síðan notuð sem rök fyrir niðurstöðu er hætt við að réttarkerfið sjálft verði þátttakandi í því að festa brotið í sessi. Spurningin sem stendur eftir er því einföld en alvarleg: ef íslenskir dómstólar beita sömu rökum og Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað dæmt ríki fyrir, eru þessir dómstólar þá að brjóta mannréttindi barna? Og verðlauna það foreldri sem rýfur tengsl barns við foreldri sitt? Höfundur er formaður Foreldrajafnréttis. Dómar: Landsréttur 19. mars 2026 (628/2025). https://www.landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=f153a8fb-105e-46bb-a159-58a554d7407d MDE, Strand Lobben o.fl. gegn Noregi, 10. september 2019 (37283/13). https://hudoc.echr.coe.int/eng?i=001-195909 MDE, Pisică gegn Moldóvu, 29. október 2019 (23641/17). https://hudoc.echr.coe.int/engi=001-197214 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dómstólar Mannréttindadómstóll Evrópu Börn og uppeldi Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar