Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar 25. apríl 2026 07:02 Sem gamall HK-ingur, þó löngu fluttur úr Kópavogi — og HK raunar líka flutt úr mínu gamla hverfi upp í efri byggðir bæjarins — finn ég enn sterkt hversu seint tengingin við gamla klúbbinn og samfélagið sem því fylgdi slitnar. Nú bý ég í Safamýri, sem lengi var þekkt sem félagssvæði Fram en þar ræður Víkingur nú ríkjum. Í hverfinu er eldri kynslóðin að stórum hluta enn harðir Fram-arar, en börnin hafa tekið rauð-svarta búningnum fagnandi og hlaupa í honum stolt um hverfið. Á sama tíma hefur Úlfarsárdalur tekið Fram opnum örmum og virkjað félagið sem mikilvægan samfélagslegan innvið í nýju og ört vaxandi hverfi. Sama hvert farið er um borgina, þar eru íþróttafélögin í brennidepli. Þau gegna mikilvægu hlutverki sem sameinandi afl innan hverfanna og eru jafnframt órjúfanlegur hluti af hversdegi íslenskra barna og ungmenna. Við viljum auðvitað öll að liðið okkar vinni glæsta sigra, en raunverulegt gildi íþróttahreyfingarinnar liggur í daglegu starfi með börnum og ungmennum. Íþróttafélögin móta sterk hverfi og einstaklinga Við vitum að virk þátttaka í frístundum er ein áhrifaríkasta forvörn sem til er. Þegar öll börn fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttu og aðgengilegu íþrótta- og frístundastarfi styrkjum við bæði líðan þeirra og samfélagið í heild. Það er því á okkar ábyrgð að tryggja að öll börn hafi aðgang að slíku starfi. Enn eru þó of mörg börn sem standa utan við – vegna efnahags, uppruna eða skorts á upplýsingum. Það er áskorun sem við verðum að taka alvarlega. Þess vegna leggjum við í Samfylkingunni áherslu á eftirfarandi atriði í kosningastefnu okkar þegar kemur að íþróttastarfi í borginni: Börn og unglingar frá tekjulágum heimilum fái fulla niðurgreiðslu á einni tómstund að eigin vali. Forgangsröðum uppbyggingu og viðhaldi íþróttamannvirkja í öllum hverfum með áherslu á bætta aðstöðu fyrir börn og ungmenni. Eflum íþróttafélögin sem lykilaðila í hverfunum þannig að hreyfing og samfélag séu aðgengileg öllum í sínu nærumhverfi. Fótbolti, frjálsar, badminton eða skíði – sama hver íþróttin er, þá er starfið borið uppi af öflugum eldhugum og sjálfboðaliðum sem leggja sig fram um að byggja upp gott samfélag og styrkja sitt nærumhverfi. Við í Samfylkingunni viljum vera í liði með þessu fólki og hjálpa þeim að byggja upp kröftug íþróttafélög með sterka tengingu við þeirra hverfi. Ef við ætlum að byggja borg þar sem jöfn tækifæri eru raunveruleg en ekki bara orð, verðum við að fjárfesta í því sem skiptir máli. Sterk íþróttafélög í hverfunum eru ekki bónus eða aukaatriði – þau eru forsenda þess að öll börn fái að tilheyra og blómstra, innan vallar sem utan. Það er sú stefna sem við veljum. Því þannig byggjum við upp góða liðsheild og gott lið. Öll sem hafa náð árangri í íþróttum og unnið titla vita að þeir byrja fyrst að rúlla inn á færibandi þegar liðsheildin er sterk. Vinnum saman og stefnum á toppinn! Höfundur skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birkir Ingibjartsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Skoðun Draugasögur nútímans Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hinn háværi minnihluti Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Af hverju ég kýs Já 29. ágúst Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar