Valdimar Örnólfsson er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. apríl 2026 12:37 Valdimar ásamt Kristínu Jónsdóttur eiginkonu sinni í Kerlingarfjöllum. Valdimar Örnólfsson, íþróttafrömuður og skíðakappi, lést á Hrafnistu Sléttuvegi mánudaginn 20. apríl, 94 ára að aldri. Með honum er genginn einn af atkvæðamestu íþróttafrömuðum síðustu aldar.
Hann varð landsþekktur þegar hann stjórnaði og kenndi leikfimi í Ríkisútvarpinu á árunum 1957-82 og ekki síður fyrir frumkvöðlastarf í íþróttum. Fáir hafa stuðlað meira að framgangi skíðaíþróttarinnar á Íslandi. Hann, ásamt félögum sínum, stofnaði og stjórnaði Skíðaskólanum í Kerlingarfjöllum frá 1961 til aldamóta 2000 þegar loka þurfti skólanum vegna snjóleysis. Skíðaskólinn laðaði til sín tugi þúsunda Íslendinga sem nutu þess að skíða að sumri til á hálendinu á daginn og syngja saman á víðfrægum kvöldvökum. Valdimar Örnólfsson fæddist á Suðureyri í Súgandafirði 9. febrúar 1932. Foreldrar hans voru Örnólfur Valdimarsson kaupmaður og útgerðarmaður og Ragnildur Kristbjörg Þorvarðardóttir kennari og húsmóðir. Valdimar kvæntist 19. mars 1963 Kristínu Jónasdóttur f. 24. apríl 1933, fyrrverandi flugfreyju og forstöðumanni hjá Reykjavíkurborg. Kristín lést 17. júní. 2019. Þau eignuðust þrjá syni, Jónas orkuverkfræðing og leiðsögumann fæddur árið 1963, Örnólf fæddur árið 1964 bæklunarlækni og Kristján bæklunarlækni í Bodö í Noregi, fæddur árið 1967. Valdimar og Kristín eignuðust níu barnabörn og tvö barnabarnabörn. Valdimar lauk stúdentsprófi frá MR 1953, íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1954, íþróttafræðiprófi frá Íþróttaháskólanum í Köln 1956, prófi í frönsku og frönskum bókmenntum frá Háskólanum í Grenoble í Frakklandi 1957. Hann var íþróttakennari við MR 1957-67 og kenndi frönsku við sama skóla 1958-72. Hann var íþróttastjóri Háskóla Íslands frá 1967 og þar til hann fór á eftirlaun. Valdimar Örnólfsson og Magnús Pétursson við leikfimikennslu um miðja síðustu öld. Hér má sjá framkvæmdina í þá daga. Valdimar lék Harald í Skugga-Sveini í Þjóðleikhúsinu 1961-62, lærði söng hjá Sigurði F. Demetz 1958-61, var einn af stofnendum Söngsveitarinnar Filharmoníu, söng í MR kvartettinum, Stúdentakórnum og söng um áratugaskeið með Karlakórnum Fóstbræðrum og síðar með Gömlum Fóstbræðrum. Valdimar keppti á Vetrarólympíuleikunum í Cortina á Ítalíu 1956 og var þjálfari og fararstjóri alpagreina á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1964. Valdimar var formaður Íþróttakennarafélags Íslands 1957-58, formaður Íþróttanefndar ríkisins 1971-91, var stofnandi og fyrsti formaður Fimleikasambands Íslands 1968-70 og var fyrsti formaður Ólympíuakademíunnar 1987-97. Valdimar var Íslandsmeistari á skíðum 1952 og í frjálsum íþróttum 1953. Hann tók þátt í fjölda stúdentamóta erlendis, var Frakklandsmeistari stúdenta á skíðum 1957 og í þriðja sæti í stórsvigi á heimsmeistaramóti stúdenta í Zakopane í Póllandi 1958. Hann var fánaberi í ólympíuliði Íslands í alpagreinum í Cortina á Ítalíu 1956 og var þjálfari, fánaberi og fararstjóri á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1964. Valdimar og Magnús Pétursson á góðri stundu. Valdimar er heiðursfélagi ÍSÍ og FSÍ, og hefur m.a. hlotið riddarakross Fálkaorðunnar. Útför Valdimars fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 11. maí.
Andlát Skíðaíþróttir Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira