Innlent

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá samkomunnum tveimur í dag og í kvöld.
Frá samkomunnum tveimur í dag og í kvöld.

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, hafi hist heima hjá Kristrúnu í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag.

Þorgerður Katrín birti mynd af þeim stöllum á Facebook í kvöld með skilaboðunum: „Gleðilegt sumar, kæru landsmenn! Mættar í pizzupartý til Kristrúnar. Okkar besta forsætisráðherra.“

Þar hafa fjölmargir skrifað athugasemdir og gefið í skyn að Kristrúnu sé pítsan mikilvægari en Grindvíkingar.

Þorgerður birti færsluna rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Fundurinn í Grindavík hófst klukkan hálf fimm í dag og lauk um klukkan sex. Búið var að láta forsvarsmenn fundarins vita af því í upphafi vikunnar að Kristrún gæti ekki mætt á fundinn.

Í tilkynningu frá forsvarsmönnum fundarins sem send var á fjölmiðla fyrr í dag stóð þó að Kristrún hefði verið „boðið að ávarpa fundinn og greina frá afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur.“


Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona Kristrúnar, segir í samtali við fréttastofu að þátttaka Kristrúnar í fundinum hafi verið auglýst án samráðs við hana. Forsætisráðherra hafi ekki komist á fundinn í dag vegna persónulegra skuldbindinga á fundartímanum.

„Kvöldverður með formönnum ríkisstjórnarflokkanna tengist á engan hátt fjarveru ráðherra á fundinum, enda átti hann sér stað talsvert eftir að íbúafundinum lauk.“

Þá segir hún að skipuleggjendur fundarins hafi verið látnir vita af því strax á mánudag að Kristrún kæmist því miður ekki en fundarboðið barst á föstudaginn. Í svari ráðherra til skipuleggjanda bauðst hún til að funda með bæjarstjórn Grindavíkur seinna í vikunni. Þá mun hún einnig funda með íbúasamtökunum Járngerði í næstu viku.


Fréttastofa ræddi við nokkra gesti fundarins að honum loknum. Þá var kvartað yfir því að forsætisráðherra hefði ekki mætt. Einn sem rætt var við sagði að sífellt væri verið að snúa bakinu við Grindvíkingum.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir í svari við eina færslu á Facebook, eins og bent var á í grein DV, að pítsupartíið svokallaða hafi átt að hefjast klukkan átta í kvöld. Það hafi ekki spilað inn í það að Kristrún hafi ekki getað sótt fundinn.

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, er einn þeirra sem hefur gagnrýnt pítsupartíið og gefið til kynna að það hafi verið ástæðan fyrir því að Kristrún hafi ekki  mætt á fundinn í dag.

Grindvíkingar hafa einnig gagnrýnt pítsupartíið.


Tengdar fréttir

Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar

Grindvíkingar segja að þeim sé treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Þeir þakka landsmönnum og stjórnvöldum fyrir stuðninginn en krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi eðlilegrar endurreisnar bæjarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×