Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. apríl 2026 16:17 Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og fyrrverandi landlæknir. Vísir/Vilhelm Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ölmu Möller heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 og hefur síðan verði lagt fjórum sinnum fyrir þingið.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Frumvarpið var fyrst lagt fram að undangenginni vinnu starfshóps sem skipaður var í júní 2021 til að skrifa drög að frumvarpi til heildarlaga um sóttvarnir. Ýmsar breytingar hafa orðið á því í meðförum þingsins. „Vönduð og vel ígrunduð löggjöf um sóttvarnir er gríðarlega mikilvæg fyrir heilsu og velferð landsmanna ef vá steðjar að vegna farsótta. Hér hefur verið vandað til verka og öllum steinum velt við til að gera löggjöfina sem best úr garði. Ég fagna þessum stóra áfanga innilega,“ er haft eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra í tilkynningu. Líkt og alþjóð veit gegndi Alma embætti landlæknis þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir og myndaði ásamt Víði Reynissyni og Þórólfi Guðnasyni hið svokallaða þríeyki, sem stýrði upplýsingafundi Almannavarna daglega meðan á honum stóð. Því kemur vart á óvart að hún fagni áfanganum innilega. Alma Möller, þá landlæknir, ásamt Víði Reynissyni, þá sviðsstjóra Almannavarna og nú þingmanni Samfylkingarinnar, og Þórólfi Guðnasyni fyrrverandi sóttvarnalækni á einum af fjölmörgum upplýsingafundum Almannavarna í kórónuveirufaraldrinum.Vísir/Vilhelm Með nýjum lögum eru skýrð betur þau úrræði sem sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra geta gripið til vegna hættu á farsóttum til eða frá Íslandi innan lands og vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum. Markmið lagasetningar er að vernda almannaheill; samfélagið og líf og heilsu einstaklinga gegn smitsjúkdómum og annarri vá sem lögin taka til. Einnig eru skýrðar þær heimildir sem stjórnvöld hafa til opinberra sóttvarnaráðstafana og stjórnsýsla sóttvarna einfölduð og skýrleiki þeirra aukinn.
Heilbrigðismál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira