Viðskipti innlent

Ráðin for­stöðumaður laganáms við laga­deild HR

Atli Ísleifsson skrifar
Helga Kristín Biering Auðunsdóttir.
Helga Kristín Biering Auðunsdóttir. HR

Helga Kristín Biering Auðunsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Um er að ræða nýja stöðu. 

Í tilkynningu frá skólanum segir að með ráðningunni sé ætlunin að styrkja enn frekar umgjörð náms og kennslu við deildina og með því styðja áframhaldandi þróun laganáms við HR.

äHlutverk forstöðumanns laganáms er að leiða þróun og samræmingu laganáms, hafa umsjón með gæðum náms og kennslu og fylgja eftir áframhaldandi uppbyggingu námsleiða við deildina.

Helga Kristín er lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hún er með doktorspróf í lögfræði frá Fordham University í New York, LL.M.-gráðu frá University of Miami og hefur einnig lokið BS-prófi í viðskiptalögfræði og meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst. Fræðileg sérsvið hennar eru stjórnarhættir, félagaréttur, sjálfbærni og réttarumhverfi fjármálafyrirtækja.

Helga Kristín hefur kennt lögfræði frá árinu 2009, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum, og hefur því að baki um 17 ára reynslu af kennslu og fræðastarfi á sviði lögfræði. Hún býr jafnframt yfir víðtækri reynslu af þróun laganáms, þróun kennsluhátta og gæðamálum og hefur um árabil komið að uppbyggingu og framþróun lögfræðimenntunar í innlendu og alþjóðlegu samhengi,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×