Sigríður Björk aftur færð til Árni Sæberg skrifar 21. apríl 2026 12:22 Sigríður Björk Guðjónsdóttir var skipuð ríkislögreglustjóri í september 2020. Þar áður var hún lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi Ríkislögreglustjóri, hefur þegar látið af störfum í dómsmálaráðuneytinu en hún varð sérfræðingur þar á bæ eftir að hafa sagt af sér embætti Ríkislögreglustjóra í nóvember. Hún er nú sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Þetta kemur fram á starfsmannalista á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins. Vísir spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra hverju sætti að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun en hún vísaði á ráðuneytisstjóra. Dómsmálaráðuneytið hefur móttekið fyrirspurn Vísis vegna málsins en ekki svarað. Sigríður Björk lauk störfum sem ríkislögreglustjóri í nóvember í fyrra eftir tæplega sex ára starf. Sigríður hafði þá hlotið mikla gagnrýni vegna Intra-málsins svokallaða sem snerist um að hún greiddi ráðgjafa og eiganda fyrirtækisins Intra samtals 160 milljónir króna í verktakagreiðslur á fimm ára tímabili, án útboðs. Tímakaupið var um 33 þúsund krónur, líka fyrir verslunarferðir í Jysk, val á píluspjaldi og símtöl. Hélt fullum launum í nýju starfi Þegar Sigríður Björk sagði af sér átti hún fjögur ár eftir af skipunartíma sínum og átti því rétt á fullum launum án vinnuframlags. Í stað þess að hún sæti heima á launum var afráðið að hún yrði færð til í starfi og tæki við stöðu sérfræðings í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi hjá dómsmálaráðuneytinu. „Hún heldur sínum launum út skipunartímann. Þetta er ekki atriði sem hægt er að semja um. Þannig eru okkar landslög samin og í því samhengi finnst mér jákvætt að niðurstaðan sé ekki sú að hún segi af sér embætti og sitji heima á launum að gera ekki neitt heldur verði að vinna fyrir þeim og í þágu mjög mikilvægra verkefna,“ sagði dómsmálaráðherra um þá tilhögun á sínum tíma. Talsvert rót Nú hefur Sigríður Björk þegar söðlað um eftir að hafa gegnt stöðu sérfræðings í dómsmálaráðuneytinu í innan við hálft ár. Hún er nú titluð sérfræðingur á skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ekki liggur fyrir í hverju það starf felst. Hún er ekki eini starfsmaður dómsmálaráðuneytisins sem hefur fært sig um set nýlega en það gerði einnig Jakob Birgisson, sem hafði verið aðstoðarmaður dómsmálaráðherra frá því að hann tók við. Hann hætti til þess að einbeita sér að uppistandi. Þórdís Valsdóttir lét af störfum sem upplýsingafulltrúi ráðuneytisins á dögunum en það gerði hún til þess að taka við að Jakobi. Freyr Gígja Gunnarsson tók við af Þórdísi en hann hafði verið blaðamaður á Ríkisútvarpinu um árabil. Vert er að nefna að hann greindi fyrstur manna frá Jysk-málinu, sem leiddi til afsagnar Sigríðar Bjarkar. Vísir hefur sent fyrirspurn á Frey Gígju þar sem spurt er hver ástæðan hafi verið að Sigríður Björk var færð úr dómsmálaráðuneyti yfir í mennta- og barnamálaráðuneytið, hvar hennar sérþekking ætti helst að koma að góðum notum? Og: Hvaða sérþekkingu hefur Sigríður Björk sem gæti komið að notum í mennta- og barnamálaráðuneytinu? Kraftar hennar hafi ekki nýst sérlega vel Sigríður Björg hefur tjáð sig um flutninginn í færslu á Facebook. Þar segir hún að hún hafi óskað eftir færslu í dómsmálaráðuneytið á sínum tíma í stað þess að fá starfslokasamning þar sem hana hafi langað að gera þar gagn. „Þegar til kom fannst mér kraftar mínir ekki nýtast sérlega vel í ráðuneytinu enda búin að vera í nefndum og starfshópum á vegum ráðherra í því ráðuneyti og fátt sem hægt var að bæta við.“ Hún hafi því átt samtal samtal við ráðherra og í kjölfar þess óskað eftir flutningi til mennta- og barnamálaráðuneytis. „Sá flutningur var ákveðinn um miðjan mars og hefur því ekkert að gera með það að nýr samskiptastjóri í DMR sé fréttamaðurinn sem fjallaði um mín mál enda var hann eflaust að gera sitt besta. Í mennta- og barnamálaráðuneytinu er annar taktur og ný verkefni sem ég hef mikla trú á sem snúa að farsæld barna og öryggi. Ég var ekki beðin um viðtal eða viðbrögð við fréttinni svo ég bregst við henni hér,“ segir hún í færslu sem lokuð er öðrum en vinum hennar á Facebook. Ekki náðist í Sigríði Björk við vinnslu fréttarinnar en hún hefur verið uppfærð eftir að hún birti færsluna á Facebook.
Vistaskipti Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglan Greiðslur ríkislögreglustjóra til Intra Stjórnsýsla Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira