Körfubolti

Fyrstur til að vera kosinn varnar­maður ársins með fullu húsi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Victor Wembanyama hefur snúið gengi San Antonio Spurs við síðan félagið valdi hann með fyrsta valrétti í nýliðavalinu 2023.
Victor Wembanyama hefur snúið gengi San Antonio Spurs við síðan félagið valdi hann með fyrsta valrétti í nýliðavalinu 2023. getty/Ronald Cortes

Victor Wembanyama, leikmaður San Antonio Spurs, var valinn varnarmaður ársins í NBA-deildinni í körfubolta. Hann fékk fullt hús atkvæða í kjörinu.

Wembanyama, sem er 22 ára, er sá yngsti í sögu NBA sem hefur verið valinn varnarmaður ársins. Hann er jafnframt sá fyrsti sem er kjörinn varnarmaður ársins með fullu húsi atkvæða.

Allir þeir sem kusu settu Wembanyama í efsta sætið á sínum seðli. Hann fékk alls fimm hundruð atkvæði í kjörinu af fimm hundruð mögulegum. Chet Holmgren, leikmaður meistara Oklahoma City Thunder, fékk 239 atkvæði en langflestir settu hann í 2. sætið á sínum lista á eftir Wembanyama.

Í deildarkeppni NBA var Wembanyama með flest varin skot allra leikmanna (197). Þá var hann í 4. sæti yfir þá sem tóku flest fráköst með 11,5 slík að meðaltali í leik.

Wembanyama var í 2. sæti í kjörinu á varnarmanni ársins á sínu fyrsta tímabili í NBA en spilaði ekki nógu marga leiki til að koma til greina í kjöri síðasta tímabils.

Wembanyama er einnig tilnefndur sem leikmaður ársins (MVP) ásamt Nikola Jokic hjá Denver Nuggets og Shai-Gilgeous-Alexander, leikmanni Oklahoma.

San Antonio endaði í 2. sæti Vesturdeildarinnar með 62 sigra. Liðið er 1-0 yfir í einvíginu gegn Portland Trail Blazers í 1. umferð úrslitakeppninnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×