Nýju fötin keisarans – Einfaldað í þykjustunni Árni Davíðsson skrifar 20. apríl 2026 10:30 Á heimasíðu stjórnarráðsins er tilvitnun í ummæli Jóhanns Páls Jóhannsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um að til standi að einfalda regluverk og að starfsleyfisskyldu hafi þegar verið létt af 16 flokkum atvinnustarfsemi [1]. Einnig kemur fram að Jóhann Páll ætli að halda áfram á þessari vegferð og leggja fyrir Alþingi frumvarp um að afnema starfsleyfisskylduna fyrir 104 flokka atvinnustarfsemi til viðbótar. Með þessari fullyrðingu um einföldun er gefið í skyn að umræddar atvinnugreinar þurfi ekki lengur leyfi heilbrigðiseftirlitsins og geti því hafið starfsemi án aðkomu stjórnvalda. Ef það væri í raun satt, þá myndi þessi pistill eflaust fjalla um hve óábyrgt það væri af Jóhanni Páli að leggja slíkt til, en vandinn er sá (kannski sem betur fer) að þetta er einfaldlega ekki satt. Tvö nöfn yfir sama hlutinn Þessi svokallaða einföldun hans Jóhanns Páls, þ.e. að krefja atvinnurekendur um að „skrá“ starfsemi sína í stað þess að þeir sæki um starfsleyfi, er nefnilega háð samþykki heilbrigðiseftirlitsins og það er óheimilt að hefja starfsemi án þess að eftirlitið hafi gefið grænt ljós. Jóhann Páll er því að byggja upp tvöfalt leyfiskerfi, þar sem atvinnurekendur þurfa að kynna sér hvort þeir eigi að afla sér annaðhvort „skráningarleyfis“ eða starfsleyfis, jafnvel þótt báðar leyfistegundir séu afgreiddar með sama hætti hjá sömu stofnun. Hér myndi ráðherrann eflaust benda á að það sé reyndar ákveðinn munur á þessum tveimur leyfum, þ.e. að ekki þurfi að auglýsa skráningar í fjórar vikur líkt og er nú skylt að gera með starfsleyfin. Það er vissulega rétt en það sem hann gleymir að nefna er að þessari skyldu til að auglýsa öll starfsleyfi var komið á sem hluti af lögfestingu skráningarskyldunnar 2017 [2] þegar umhverfisráðuneytið gullhúðaði tilskipun um losun frá þungaiðnaði [3]. Misheppnuð gullhúðun Umhverfisráðuneytið ákvað þá, af einhverjum furðulegum ástæðum, að gullhúða Evróputilskipun um þungaiðnað og innleiða auglýsingaskyldu fyrir þungaiðnað fyrir öll starfsleyfisskyld fyrirtæki á Íslandi. Auglýsingaskyldan sem átti í raun eingöngu að gilda fyrir starfsemi á borð við kolaorkuver, málmbræðslur, efnaverksmiðjur og sorpbrennslustöðvar var á Íslandi lögfest fyrir m.a. almenningssalerni, hárgreiðslustofur og skyndibitastaði. Auglýsingaskyldan fyrir þessi minni fyrirtæki var hreinn málamyndagjörningur sem kallaði bara á meira skrifræði án nokkurs gagns fyrir almenning eða fyrirtæki. Í stað þess að vinda ofan af þessari vitleysu strax á næsta þingi þá hefur Umhverfisráðuneytið sýnt af sér það ábyrgðarleysi að láta þetta viðgangast í tæpan áratug án minnstu tilraunar til að leiðrétta rót vandans. Bútasaumur ráðuneytisins Af þessum lagasetningarfarsa sprettur vandræðagangur ráðuneytisins undanfarin misseri við að reyna að koma böndum á auglýsingaskylduna sem hefur bitnað á bökurum, veitingamönnum og öðrum atvinnugreinum sem hafa ekkert með þungaiðnað að gera. Ráðherra stærir sig svo af því að vera að „einfalda“ kerfið, með því að færa atvinnugreinaflokka úr hópi starfsleyfa og yfir í skráningu, meðan þetta er í raun tvö nöfn yfir sama hlutinn. Hættan af óvandaðri lagasetningu Hvers vegna ráðuneytið kaus að gullhúða löggjöfina 2017 og eyða síðan næstu 10 árum í að vinda ofan af henni er auðvitað rannsóknarefni. Hér ætla ég ekki að geta mér til um hverju köngulærnar í ráðuneytinu ætluðu sér að ná fram með þessari ráðstöfun. Þessi saga sýnir þó hvað það getur kostað þegar Alþingi stendur ekki í lappirnar gegn framkvæmdavaldinu. Núna liggja tvö frumvörp fyrir Alþingi [4,5] þar sem ráðuneytin hyggjast kollvarpa löggjöf fyrir eftirlitskerfið í matvæla-, hollustu- og mengunarmálum án þess að kanna eða skilja afleiðingarnar af breytingunum eða átta sig á hvernig á að sinna þeim verkefnum sem falla undir þessa löggjöf. Vonandi ber Alþingi gæfu til að senda þessi frumvörp aftur til föðurhúsanna. Jafn viðamiklar breytingar á viðkvæmum málaflokkum á ekki að gera nema að vandlega athuguðu máli. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. [1] Starfleyfisskyldu létt af 16 flokkum atvinnurekstrar og stefnt að afnámi auglýsingaskyldu vegna 104 atvinnuflokka.https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/03/20/Starfleyfisskyldu-lett-af-16-flokkum-atvinnurekstrar/ [2] Lög um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (EES-reglur, losun frá iðnaði og skráningarskylda). Lög nr. 66/2017.https://www.althingi.is/altext/146/s/1056.html [3] DIRECTIVE 2010/75/EU OF THE EUROPEAN PARLIAMENT AND OF THE COUNCIL, of 24 November 2010, on industrial emissions (integrated pollution prevention and control). http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX:32010L0075 [4] Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. 582. mál, lagafrumvarp. 157. löggjafarþing 2025–2026.https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/582/?ltg=157&mnr=582 [5] Stofnun atvinnuveganna. 568. mál, lagafrumvarp. 157. löggjafarþing 2025–2026. https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/568/?ltg=157&mnr=568 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar