„Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Siggeir Ævarsson skrifar 19. apríl 2026 19:54 Isabella Ósk átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld, klikkaði vart úr skoti og skilaði 22 stigum í hús og átta fráköstum að auki Vísir/Vilhelm Grindavík er komið í bílstjórasætið í einvígi liðsins gegn Njarðvík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna eftir 81-87 sigur í Njarðvík í kvöld.
Isabella Ósk Sigurðardóttir átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld og var hæstánægð í leikslok með að vera búin að stela heimavellinum af Njarðvík. „Bara geggjuð. Við komum inn í þennan leik tilbúnar. Fylgdum leikplaninu og það virkaði hjá okkur í dag.“ Það hefur verið mikið rætt um hversu hávaxið lið Grindavíkur er og það sýndi sig í dag en Njarðvíkingar voru oft í tómu basli með Grindvíkinga í teignum. Isabella sagði að það hefði verið stór partur af uppleggi leiksins að sækja þangað. „Það var stór partur hjá okkur. Við erum með mjög sterka leikmenn í teignum hjá okkur. Mikið af stórum og góðum leikmönnum sem geta líka skotið.“ Sjálf skoraði Isabella 22 stig og klikkaði aðeins úr tveimur af ellefu skotum sínum. Ósjaldan keyrði hún beint á körfuna og setti boltann mjúklega spjaldið ofan í. Það var þó alls ekki eitthvað sem hún hefur verið að æfa sérstaklega að sögn. „Nei, ekki þannig. Þær voru að gefa mér þetta og ég tók því.“ Á tímabili leystist leikurinn upp í hálfgerða vitleysu þar sem það var mikið brotið og hart tekist á. Hentar það Grindvíkingum mögulega betur en Njarðvík þegar leikurinn fer aðeins úr böndunum? „Ég veit það ekki. Við vorum bara einhvern veginn tilbúnar í dag. Oft í vetur hefur það verið þannig að hitt liðið kemur og við einhvern veginn gefumst upp. Mér finnst við vera „orðnar betri bara í að standa saman og klára leikinn.“ Þrátt fyrir að vera komnar í góða stöðu í einvíginu er Isabella ennþá með báða fætur á jörðinni. „Einn leikur í einu. Við fögnum þessu í dag og mætum svo bara á æfingu á morgun og undirbúum okkur fyrir næsta leik.“
Bónus-deild kvenna Körfubolti Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Besti árangur Íslendings á EM í 24 ár Sport Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Fótbolti Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira