Körfubolti

Kerr í­hugar fram­tíð sína eftir tap í umspilinu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Steve Kerr er óviss um næstu skref.
Steve Kerr er óviss um næstu skref. Stephen Lam/San Francisco Chronicle via Getty Images

Orlando Magic og Phoenix Suns urðu í nótt síðustu liðin til að tryggja sig inn í úrslitakeppni NBA deildarinnar, á kostnað Charlotte Hornets og Golden State Warriors. Óvíst er hvort Steve Kerr haldi áfram að þjálfa stríðsmennina.

Samningur Steve Kerr er að renna út og hann vildi ekki skrifa undir framlengingu fyrir þetta tímabil. Viðræður voru settar á ís þangað til eftir tímabilið og nú er því lokið. Eftir 111-96 tapið gegn Suns í nótt sagðist þjálfarinn ætla að nýta næsta viku eða tvær til að íhuga framtíðina.

„Ef [mínum tíma er lokið], er ég ekkert nema þakklátur fyrir þetta frábæra tækifæri sem ég hef fengið. Að þjálfa þetta lið, fyrir framan frábæra áhorfendur, með leikmenn eins og Steph Curry, Draymond Green og alla hina,“ sagði Kerr við ESPN.

Kerr var að klára sitt tólfta tímabil sem þjálfari Warriors. Hann leiddi liðið til meistaratitils árið 2015, stýrði liðinu síðan til besta árangurs í deildarkeppni tímabilið eftir, og átti eftir að skila þremur meistaratitlum í viðbót árið 2017, 2018 og 2022.

Undir hans stjórn, með Steph Curry fremstan í fararbroddi, urðu Warriors að einu mesta stórveldi sem NBA deildin hefur séð. En á síðustu tímabilum hefur liðið rétt svo slefað inn í úrslitakeppnina og ekki verið líklegt til að vinna titilinn.

Curry er sjálfur orðinn 38 ára gamall en enn í hæsta gæðaflokki. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en hefur lýst yfir áhuga á framlengingu og einnig sagt að hann vilji hafa Kerr áfram sem þjálfara.

Draymond Green verður sömuleiðis áfram á næsta tímabili, þrátt fyrir að hafa verið sterklega orðaður við skipti. Hann ætlar að nýta leikmannaréttinn og framlengja um eitt ár.

Kerr segir samband sitt og Curry hafa mikið að segja um ákvörðunina.

„Það er hluti af jöfnunni. Ég vil ekki labba í burtu frá Steph. Ég er allavega alls ekki að fara til að þjálfa eitthvað annað lið í NBA. Ég myndi aldrei yfirgefa Steph. En það þarf allt að smella saman, það eru samtöl sem eiga eftir að eiga sér stað,“ sagði Kerr.

Magic völtuðu yfir Hornets

Eins og Suns gerðu gegn Warriors tókst Orlando Magic að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, með 121-90 stórsigri gegn Charlotte Hornets. 31 stiga sigurinn er sá stærsti í stuttri sögu umspilsins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×