Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 17. apríl 2026 14:01 Íþróttir og aðrar tómstundir gegna lykilhlutverki í lífi barna og ungmenna. Þátttaka í slíku starfi hefur jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu, styrkir félagsfærni og eflir sjálfsmynd. Fyrir mörg börn er möguleikinn að velja sér íþrótt eða áhugamál ekki aðeins spurning um afþreyingu, heldur mikilvægur þáttur í þroska, sjálfstrausti og tengslamyndun. Íþróttir og tónlistarnám eru meðal þeirra tómstunda sem börn sækjast hvað helst eftir. Þrátt fyrir þetta hafa ekki öll börn jafnan aðgang að t.d. íþróttastarfi. Það má oft rekja til fjárhagsstöðu foreldra eða erfiðleika við að komast á æfingar og mót. Þátttaka í keppnum er stór hluti af íþróttaiðkun margra barna og ungmenna og flestum þykir hún bæði skemmtileg og uppbyggileg. Veruleikinn er hins vegar að sum börn sitja eftir. Einfaldlega vegna þess að aðstæður þeirra leyfa ekki þátttöku. Á síðustu árum hefur fyrirkomulag íþróttamóta breyst verulega. Ferðalög á mót hafa orðið sífellt umfangsmeiri, sérstaklega í boltaíþróttum. Börn og unglingar ferðast nú reglulega langar leiðir, milli landshluta og jafnvel til útlanda, til að taka þátt í keppnum, oft óháð árstíma. Þetta er frábrugðið því sem áður tíðkaðist þegar keppni fór að mestu fram innan nærsamfélagsins. Þá kepptu félög á tilteknum svæðum sín í milli og ferðalög voru styttri og einfaldari. Aukið álag á fjölskyldur Þessi þróun hefur haft í för með sér aukið álag á fjölskyldur. Kostnaður við ferðalög, gistingu og uppihald getur orðið mjög mikill, sérstaklega þegar börn taka þátt í mörgum mótum á ári. Dæmi eru um að heildarkostnaður foreldra hlaupi á hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum króna árlega. Þetta er auðvitað þungbært fyrir efnaminni fjölskyldur og getur reynt verulega á heimili almennt. Álagið er þó ekki eingöngu fjárhagslegt. Tími foreldra, skipulag fjölskyldulífs og stöðug ferðalög setja sitt mark á daglegt líf. Þá má ekki líta fram hjá þeim áhættuþáttum sem fylgja ferðalögum, sérstaklega yfir vetrartímann þegar aðstæður á vegum geta verið krefjandi. Þrátt fyrir þessar áskoranir er íþróttastarf á Íslandi víða mjög öflugt og metnaðarfullt. Það er ástæða til að vera stolt af því starfi sem unnið er innan íþróttahreyfingarinnar. Hins vegar hefur í auknum mæli komið fram gagnrýni á umfang móta og ferðalaga, þar sem sumir telja að gengið hafi verið of langt. Foreldrar hafa margir greint frá því að þeir að þeir finni fyrir verulegu álagi, bæði fjárhagslegu og andlegu. Það geti haft áhrif á þátttöku barna í íþróttum. Ein móðir orðaði þetta þannig: „Ég var svo ánægð þegar strákurinn minn hætti í fótbolta; ég var að bugast undan kostnaðinum og tímanum sem fóru í þessi fótboltamót.“ Starfshópur um aðgerðir Í þessu samhengi hefur vinna stýrihóps, sem skipaður var af þáverandi barnamálaráðherra Guðmundi Inga Kristinssyni, beinst að því að greina stöðuna og móta stefnu. Hópurinn hefur starfað frá því í nóvember á síðasta ári með það markmið að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum jöfn tækifæri, óháð efnahag eða félagslegri stöðu foreldra. Undirrituð fer fyrir starfshópnum þar sem einnig eru sérfræðingar úr mennta- og barnamálaráðuneytinu. Hópurinn hefur átt víðtækt samráð við hagaðila og fjölskyldur sem hafa reynslu af því að ala upp börn við þröngan kost. Í samráðsferlinu hefur ítrekað komið fram að kostnaður og umfang íþróttamóta sé farinn að hafa neikvæð áhrif á möguleika barna til þátttöku. Einnig hefur verið rætt um mikilvægi þess að tryggja jafnt aðgengi að tómstundum og að öll börn hafi raunhæfan kost á að stunda íþrótt eða annað áhugamál. Stýrihópurinn hefur átt samtöl við forsvarsmenn íþróttahreyfingarinnar sem hafa lýst vilja til að stuðla að auknum jöfnuði. Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur einnig bent á að heimilin beri sífellt þyngri byrðar, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem ferðakostnaður er mikill. Að hans mati er staðan orðin þannig að nauðsynlegt sé að spyrja grundvallarspurninga um jafnt aðgengi barna að íþróttum. Hætta sé á að kostnaðurinn útiloki börn sem ekki koma af efnameiri heimilum. Þessi staða kallar á viðbrögð. Þótt aukið fjármagn geti verið hluti af lausninni er ljóst að það eitt og sér dugar ekki. Íþróttafélög þurfa einnig að endurmeta starfsemi sína, meðal annars fjölda móta og umfang ferðalaga. Víða hafa félög þegar tekið skref í þessa átt með góðum árangri. Markmiðið hlýtur að vera að tryggja að sem flest börn geti tekið þátt í íþróttum, óháð efnahag eða búsetu. Til þess þarf að skoða hvort núverandi fyrirkomulag þjóni raunverulega hagsmunum barna og fjölskyldna. Er nauðsynlegt að mótin séu svona mörg? Þarf að ferðast svona langt og oft? Það er tímabært að staldra við og endurmeta stöðuna. Með markvissum aðgerðum og samstilltu átaki er hægt að tryggja jafnan aðgang barna að íþróttum og öðrum tómstundum. Slík nálgun styður ekki aðeins við velferð barna heldur einnig við heilbrigðara og réttlátara samfélag í heild. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Fjármál heimilisins Íþróttir barna Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar